Blue Car Rental
Blue Car Rental
Blue Car Rental

Þjónustufulltrúi langtímaleigu

Við leitum að öflugum og þjónustulunduðum einstaklingi í starf þjónustufulltrúa í langtímaleigu.

Í starfinu berð þú ábyrgð á þjónustu við viðskiptavini sem nýta sér langtímaleigu og tryggir að ferlið, frá bókun til skilanna, gangi hnökralaust fyrir sig. Þú sinnir daglegu utanumhaldi og skipulagi, átt í nánum samskiptum við viðskiptavini og vinnur þétt með öðrum deildum fyrirtækisins til að tryggja framúrskarandi þjónustu og jákvæða upplifun.

Við leitum að einstaklingi sem er skipulagður, lausnamiðaður og á auðvelt með samskipti við ólíka aðila í hröðu og kviku umhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Umsjón með afhendingum og skilum bíla

Finna til bíla fyrir afhendingu

Samskipti og samvinna við aðrar deildir fyrirtækisins

Aðstoð við tilboðs- og samningagerð til viðskiptavina með viðskiptastjóra langtímaleigu

Greining á samkeppni og verðlagningu í samráði við viðskiptastjóra langtímaleigu

Tryggja góða upplifun viðskiptavina og veita þjónustu í samræmi við stefnu Blue Car Rental

Skipuleggja tímabókanir inn á verkstæði og vegna dekkjaskipta

Umsjón með bilunum og eftirfylgni þeirra

Menntunar- og hæfniskröfur

Reynsla af þjónustu og/eða sölu

Þekking á bílum og útleiguferli er kostur

Góð skipulagshæfni og nákvæm vinnubrögð

Lausnamiðuð nálgun og frumkvæði í starfi

Mjög góð samskiptahæfni og þjónustulund

Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

Almenn tölvukunnátta

Fríðindi í starfi

Líkamsræktarstyrkur

Bíll í langtímaleigu á starfsmannakjörum

Auglýsing birt24. apríl 2026
Umsóknarfrestur8. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hólmbergsbraut 1, 230 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar