
Blue Car Rental
Bílaleigan Blue Car Rental var stofnuð árið 2010 og er í dag með stærri bílaleigum landsins. Frá stofnun höfum við þjónustað yfir eina milljón ferðamenn sem hafa komið og ferðast hér um allt land á öruggum bíl.
Við erum þó miklu meira en bílaleiga. Hjá okkur starfa yfir 100 einstaklingar í mjög fjölbreyttum störfum. Virði Blue Car Rental liggur í mannauðnum þar sem þekking og færni starfsmanna nær yfir afar mörg svið og endurspeglar ferðalag bílsins frá því hann er keyptur, leigður, lagaður og loks seldur.
Við vitum hvað þarf til að ná framúrskarandi árangri og sú vinna stoppar aldrei. Samkeppnin á bílaleigumarkaði er mikil og það kallar á orku, sveigjanleika og nýstárlegar hugsanir að leiða á okkar markaði. All flestir samkeppnisaðilar eru að selja sama bílaleigubílinn og því reynir svo sannarlega á að skera sig úr fjöldanum. Það gerum við með stöðugri nýsköpun og þróun á okkar lausnum.
Við trúum því að við séum með bestu bílaleiguþjónustu sem í boði er, ekki bara á Íslandi heldur í heimi. Við erum leiðandi með því að velta sífellt fyrir okkur breyttum þörfum viðskiptavinarins sem fara stöðugt vaxandi. Við einsetjum okkur að einfalda allt bílaleigu ferlið bæði fyrir viðskiptavini sem og starfsfólk. Einungis þannig næst staðfærsla á gæðunum í okkar þjónustu.
Að vera framúrskarandi að öllu leyti er það sem við stefnum á. Áreiðanleiki og traust er það sem við stöndum fyrir og við tryggjum það með stöðugum umbótum á okkar starfsemi, nýsköpun í þjónustu og umfram allt, frábæru starfsfólki.
Gildi Blue Car Rental eru: Sveigjanleiki, Umhyggjusemi, Heiðarleiki og Framsækni. Þessi gildi leiða okkur í gegnum allar ákvarðanir, hönnun og þjónustu.
Blue Car Rental er samfélagslega ábyrgt félag. Við trúum því að hlutverk okkar nái langt umfram vegi landsins og höfum við í mörg ár verið virkur þátttakandi í verkefnum sem bæta samfélagið okkar.

Bílaþrif og standsetning bíla/Car washing and car road- ready
Leitum að heilsuhraustum og dugmiklum einstaklingum í bílaþvott og standsetningu bíla á starfsstöð okkar í Keflavík eða Reykjavík. Starfstími er frá miðjum maí til lok október. Vinnutími: 2-2-3 vaktakerfi frá 07:00-19:00 og /eða 19:00-07:00
We are looking for healthy and energetic individuals in our car washing department in Keflavík. From middle of May until the end of October. Working arrangements: 2-2-3 shift system from 07:00-19:00 and/or 19:00-07:00.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Þrif á bílum að utan og innan/Cleaning the interior and exterior of car
- Keyrsla á bílum til og frá þvottastöð/Driving cars to and from the washing station
- Önnur verkefni sem þarf til að standsetja bíl fyrir útleigu/Other work to make the car road- ready.
Auglýsing birt24. apríl 2026
Umsóknarfrestur5. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaValkvætt
Staðsetning
Blikavöllur 3, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
Ökuréttindi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (5)

Bílaþrif & Detailing – starf í boði núna
Glymur bílasnyrtistöð

Standsetning bíla í Hafnarfirði
Hertz Bílaleiga

Sumarstarf í bílaþvotti / Carwash-Ásbrú
Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar

Bílaþvottur/Carwash-Kef Airport
Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar

Starfsfólk á hjólbarðaverkstæði í Reykjavík -
Dekkjahöllin ehf