
Þjónustufulltrúi í hópi ritara LRH
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu leitar eftir drífandi og metnaðarfullum starfsmanni í stöðu þjónustufulltrúa í ritarahóp. Um er að ræða spennandi, krefjandi og fjölbreytt starf í þjónustudeild sem heyrir undir stjórnsýslu- og þjónustusvið embættisins.
Þjónustudeild sinnir stoð- og þjónustuhlutverkum fyrir bæði almenning og aðra hluta lögreglu. Deildin starfrækir m.a. ritaraþjónustu, skýrsluþjónustu, sektarþjónustu, þjónustuborð og munavörslu. Deildin hefur nýlega flutt í nýtt sameinað rými sem hefur skapað líflegt vinnuumhverfi þar sem teymisandi er í forgrunni. Jafnframt er verið að innleiða nýtt þjónustukerfi og kortleggja þjónustuferla með einföldun og skilvirkni að leiðarljósi.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem er til staðar fyrir alla alltaf. Megin áhersla er lögð á jafnrétti, starfsánægju, heilbrigðan starfsanda, traust og gagnsæi í samskiptum og að starfsfólk búi yfir þekkingu og hæfni til að takast á við fjölbreytileg verkefni. Starfsfólk embættisins er um 450 á fjórum megin starfsstöðvum.
Gildi embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu eru TRAUST, FAGMENNSKA og ÖRYGGI.
-
Þjónusta við rannsóknardeildir og ákærusvið lögreglu. Upplýsingamiðlun og ráðgjöf, símsvörun, móttaka erinda, skráningar og miðlun upplýsinga innan og utan embættisins. Ritun, ljósritun, flokkun, afhending og frágangur mála.
-
Skráning og flokkun mála í þjónustukerfi og önnur kerfi embættisins
-
Upplýsingamiðlun og leiðbeiningar til borgara um stöðu mála og næstu skref
-
Eftirfylgni við erindi og samskipti við kærendur til að tryggja góða þjónustuupplifun
-
Þátttaka í umbóta- og þróunarverkefnum tengdum þjónustuferlum og stafrænni þróun deildarinnar
-
Stúdentspróf eða önnur menntun sem nýtist í starfi
-
Reynsla af þjónustu-, móttöku- eða sambærilegu starfi er kostur
-
Reynsla af umbótavinnu er kostur.
-
Reynsla af beiðna- eða þjónustukerfum (s.s. Zendesk, Salesforce eða sambærilegum) er kostur
-
Þekking á starfsemi lögreglu og/eða opinberri stjórnsýslu er kostur
-
Framúrskarandi samskiptahæfni og rík þjónustulund
-
Mikið frumkvæði, sveigjanleiki og gott álagsþol
-
Skipulögð, vönduð og nákvæm vinnubrögð
-
Góð almenn tölvukunnátta og áhugi á stafrænum lausnum
-
Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Þess er vænst að umsækjandi hafi reynslu af störfum þar sem reynt hefur á þessa eiginleika og færni.
Íslenska










