Icewear
Icewear var stofnað árið 1972 á Hvammstanga undir nafninu Drífa en þá var fyrirtækið rekið sem prjónastofa sem framleiddi íslenskar ullarvörur. Í dag er fyrirtækið betur þekkt undir nafninu Icewear, sem jafnframt er aðal vörulína fyrirtækisins.
Icewear er leiðandi vörumerki á útivistarmarkaði og býður upp á fjölbreytt úrval af útivistarfatnaði og fylgihlutum. Icewear er fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri samkvæmt Keldunni og starfar eftir jafnlaunavottun. Verslanir Icewear eru í dag 26 talsins en auk þess er Icewear með öfluga vefverslun og fjöldi starfsfólks er um 250 manns.
Þjónustu- og markaðsfulltrúi
Icewear óskar eftir að ráða þjónustu- og markaðsfulltrúa til starfa í markaðsdeild fyrirtækisins. Viðkomandi kemur til með að sinna fjölbreyttum og krefjandi þjónustu- og markaðsverkefnum í ört vaxandi fyrirtæki.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna að allri almennri markaðssetningu vörumerkisins Icewear bæði á innlendum og erlendum mörkuðum
- Samskipti við viðskiptavini í þjónustuveri
- Samstarf við grafíska hönnuði fyrirtækisins, verslunarstjóra og annað starfsfólk Icewear
- Hugmyndasmíði og textagerð á bæði íslensku og ensku
- Greinaskrif, markaðssetning á vefmiðlum og samfélagsmiðlum ásamt vefsíðu
- Umsjón með vefsíðu Icewear
- Markaðssetning innan verslana Icewear
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Að minnsta kosti 1-2 ára reynsla af sambærilegu starfi
- Reynsla af umsjón samfélagsmiðla, efnissköpunar og textagerðar
- Frumkvæði, nákvæmni, sjálfstæði og lausnamiðað hugarfar
- Mjög góð hæfni í íslensku og ensku, bæði í töluðu og rituðu máli
Auglýsing stofnuð15. apríl 2024
UmsóknarfresturEnginn
Staðsetning
Suðurhraun 10, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)
Þjónustufulltrúi í útibúi á Akranesi
Landsbankinn
Markaðsnillingur - Birtingastjóri á META
MARS MEDIA
Verkefnastjóri markaðsmála
Markaðsstofa Reykjaness
Þjónustufulltrúi í þjónustuver
IKEA
Árekstur.is - framtíðarstarf
Árekstur.is
Sérfræðingur í gervigreind
AVIA
Áfyllingar og framsetning á vörum
Retail Support Ísland ehf.
Grafískur hönnuður
Arion banki
Starfsfólk í verslun - Selfoss
ILVA ehf
Þjónustufulltrúi
Íslenska gámafélagið
Sölu- og þjónustufulltrúi í þjónustumóttöku
Ford, Volvo og Polestar á Íslandi | Brimborg
Sérfræðingur í sölu og stafrænni markaðssetningu
Miðeind