

Tæknistarf í hljóð- og myndlausnum
Ofar leitar að sjálfstæðum og útsjónarsömum einstaklingi í hljóð- og myndlausnateymi fyrirtækisins.
Hljóð og myndlausnir sérhæfa sig í fyrirtækjalausnum m.a. fyrir fundarherbergi, sali, verslanir, ráðstefnusali og verslunarmiðstöðvar.
Helstu verkefni:
- Uppsetning og rekstur á hljóð- og myndbúnaði
- Greining og úrlausn vandamála í hljóð- og myndbúnaði
- Ýmis þjónusta á sviði hljóð og myndlausna
Hæfniskröfur
- Rík þjónustulund og skilningur á þörfum viðskiptavina
- Menntun á sviði rafvirkjunar eða rafeindavirkjunar kostur
- Góð þekking og reynsla af hljóð- og myndbúnaði
- Góð tölvuþekking og reynsla er kostur
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Áreiðanleiki og stundvísi
Hlutverk Ofar er að styðja við fyrirtæki, stofnanir og endursöluaðila með tölvu- og tæknibúnaði frá yfir 150 heimsþekktum vörumerkjum á borð við Lenovo, Canon, Bose og Sony. Fyrirtækið býður einnig upp á framúrskarandi úrval og þjónustu í hljóð- og myndlausnum, prentlausnum, ásamt tæknilausnum fyrir vöruhús, verslanir, veitingastaði og fleira.
Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum til að læra meira um vinnustaðinn.
Umsóknarfrestur er til og með 15. júní nk. Allar umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og þeim svarað.











