
Steypustöðin
Steypustöðin var stofnuð árið 1947 og eru aðalstöðvar félagsins á Malarhöfða 10 Reykjavík.
Steypustöðin er með útibú á nokkrum stöðum eins og Hafnarfirði, Selfossi, Helguvík, Borgarnesi og Þorlákshöfn ásamt tveimur færanlegum Steypustöðvum.
Eins og nafnið gefur kynna til er meginstarfssemi félagsins framleiðsla og afhending á steypu. Félagið rekur einnig helluverksmiðju, flotbíla fyrir flotmúr, múrverslun, efnisvinnslu og stærstu einingaverksmiðju landsins í Borgarnesi.
Hjá félaginu starfa nú um 300 starfsmenn

Tæknimaður í gæðastjórnun - Tímabundin ráðning
Steypustöðin leitar að sterkum og nákvæmum einstaklingi í fullu starfi. Ef þú hefur áhuga á rannsóknarvinnu og getur ekki ákveðið hvort þú vilt vinna inni eða úti, þá gæti þetta verið rétta starfið fyrir þig.
Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt. Viðkomandi mun vinna á rannsóknarstofu og einnig taka sýni á verkstað. Okkur vantar metnaðarfullan einstakling með brennandi áhuga á steypu.
Um er að ræða tímabundna ráðningu til 30. september 2026 (6 mánuðir).
Við hvetjum öll kyn og þjóðerni til að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sýnataka í stöð og á verkstað
- Innra gæðaeftirlit í efnisframleiðslu
- Prófanir á steypu
- Umsjón með gagnaskráningu og gagnageymslu
- Samskipti við starfsmenn í steypuframleiðslu
- Opinn fyrir breytingum og starfsþróun
- Önnur tilfallandi störf í samstarfi við yfirmann
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun í byggingariðn / byggingatæknifræði eða sambærilegu er kostur
- Þekking á steypufræðum eða starfsreynsla á því sviði er kostur
- Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfni
- Nákvæmni og eftirfylgni í vinnubrögðum
- Gilt ökuskírteini
- Góð hæfni í íslensku og ensku, bæði í töluðu og rituðu máli
- Jákvæð framkoma og góð samskiptahæfni
Fríðindi í starfi
- Námskeið og fræðsla
- Fjölbreytt verkefni
- Jákvætt og hvetjandi vinnuumhverfi
- Líkamsræktarstyrkur
- Hádegismatur
Auglýsing birt17. mars 2026
Umsóknarfrestur5. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaValkvætt
Staðsetning
Hringhella 2, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniMetnaðurSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðVinnsla rannsóknargagna
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Spennandi sumarstörf 2026 / Exciting Summer Jobs 2026
Alcoa Fjarðaál

Verkamann / Vélamann – Labourer / Machinery Operator – Pracownik fizyczny / Operator maszyn
Drenlagnir ehf

Flokkstjórar
Þjónustumiðstöðvar Fjarðabyggðar

Sláttumenn / Garðyrkja / Hópstjórar - Sumarstarf
Garðlist ehf

Leggðu línuna til Rarik í sumar! Sumarstarf í framkvæmdaflokki í Búðardal
Rarik ohf.

Sumarstarf í eftirliti fagaðila og rafmagnsöryggi hjá HMS
Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS)

Sumarstarf á eignadeild umhverfissviðs
Sumarstörf - Kópavogsbær

Kokkur/ Chef
Kaffi Laugalækur

Starfsmaður í framleiðslustöð
Malbikstöðin

Sumarstörf hjá Þjónustumiðstöð Kópavogs
Sumarstörf - Kópavogsbær

Verkefnastjóri fasteigna og bifreiða hjá Húsasmiðjunni
Húsasmiðjan

Smiður / starfsmaður í byggingarvinnu
Verkás Brunnar