
HD Iðn- og tækniþjónusta
HD ehf. er traust og vel rekið fyrirtæki. Árið 2024 nam velta félagsins rúmlega 6,4 milljörðum og að jafnaði starfa um 240 manns hjá fyrirtækinu. Við leggjum áherslu á fagmennsku, öfluga liðsheild og uppbyggilegt vinnuumhverfi þar sem starfsfólk fær tækifæri til að vaxa og nýta hæfileika sína. Við bjóðum upp á öruggt og skipulagt starfsumhverfi með skýrum verkferlum, nýjustu tækni og öflugri samvinnu á milli sviða. Starfsánægja mælist jafnan há í innri mælingum.

Sviðsstjóri tæknisviðs
Leiðandi hlutverk í framsæknu iðn- og tæknifyrirtæki
HD Iðn- og tækniþjónusta leita að metnaðarfullum og framsýnum stjórnanda til að leiða fjölbreytt og öflugt teymi á tæknisviði fyrirtækisins inn í næsta vaxtarskeið. Við leitum að einstaklingi með góða þekkingu á iðnaði og tæknilausnum, reynslu af stjórnunarstörfum og framúrskarandi samskiptahæfni.
HD er eitt öflugasta iðn- og tækniþjónustufyrirtæki á Íslandi og þjónustar meðal annars orku- og veitufyrirtæki, stóriðju, sjávarútveg og fiskeldi. Fyrirtækið leggur ríka áherslu á sjálfbærni, öryggi og framúrskarandi verklegan árangur.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg stjórn og rekstur tæknisviðs
- Mótun tæknistefnu HD með áherslu á sjálfbærni, nýsköpun og öryggi
- Byggja upp og leiða öflugt teymi sérfræðinga
- Leiða og þróa ástandsgreiningarþjónustu HD
- Stýra þróun og innleiðingu tæknilausna á sviði, orku, iðnaðar og sjávarútvegs
- Yfirumsjón með stærri verkefnum og verkefnastjórn
- Vinna að útboðum, tilboðum og verkáætlunum
- Fylgja eftir verkefnum og tryggja afhendingu samkvæmt áætlun og gæðaviðmiðum
- Viðhalda og efla tengsl við núverandi og verðandi viðskiptavini
- Stuðningur við önnur svið fyrirtækisins
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í verkfræði, tæknifræði, orkutækni eða skyldum greinum
- Reynsla af stjórnunarstörfum
- Þekking á helstu þáttum iðnaðar
- Leiðtogahæfni og geta til að starfa í þverfaglegum teymum
- Reynsla af verkefnastjórnun, umbótaverkefnum og innleiðingu nýrra tæknilausna
- Framúrskarandi samskiptahæfni og reynsla af samstarfi við verktaka og viðskiptavini
- Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli
Auglýsing birt23. júlí 2025
Umsóknarfrestur11. ágúst 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Vesturvör 36, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Verkefnastjóri Reykjavíkurflugvallar
Isavia Innanlandsflugvellir

Verkefnastjóri
ÍAV

Verkefnastjóri í jarðvinnu
ÍAV

Verk- eða tæknifræðingur við hönnun veitukerfa
VSÓ Ráðgjöf ehf.

Viltu horfa út í heim? Verkefnastjóri í erlendum verkefnum
Landsvirkjun

Sérfræðingur í viðskiptagreiningu og þróun markaða
Landsvirkjun

Verkefnastjóri framkvæmda
Heimar

Rafvirki
Enercon

Verkfræðingur í vöruþróun
Kerecis

Sviðsstjóri tæknisviðs HD ehf.
HD Iðn- og tækniþjónusta

Sérfræðingur í markaðseftirliti og eftirliti með raforkumarkaði
Umhverfis- og orkustofnun

Tæknistjóri / Meðstofnandi (CTO / Co-founder)
Fasteignafélagið