Grindavíkurbær
Grindavíkurbær

Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs

Við leitum að metnaðarfullum, framsýnum og öflugum leiðtoga til að gegna starfi sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs. Um er að ræða einstakt og mikilvægt tækifæri til að taka þátt í endurreisn samfélags sem stendur frammi fyrir uppbyggingu og þróun einstaks mannlífs og atvinnulífs.

Sviðsstjóri veitir sviðinu faglega og stjórnunarlega forystu og starfar í samræmi við stefnur sveitarfélagsins og lög og reglugerðir er varða starfsemina. Sviðsstjóri gegnir lykilhlutverki í þróun og uppbyggingu sveitarfélagsins og tekur þátt í að móta framtíðarsýn þess með áherslu á vandaða stjórnsýslu og góða þjónustu við íbúa og atvinnulíf. Heildarendurskoðun aðalskipulags er fyrirhuguð í sveitarfélaginu og mun sviðsstjóri leiða það verkefni.

Grindavík verður áfram verðmætaskapandi lífsgæðaumhverfi. Þetta er spennandi tækifæri fyrir aðila sem þrífst vel í síbreytilegu umhverfi og býr yfir vilja til að taka þátt í næstu sögulegu skrefum í endurreisn bæjarins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fagleg, stjórnunarleg og rekstrarleg forysta.
  • Ábyrgð á skipulagsgerð og útgáfu framkvæmdaleyfa.
  • Ábyrgð á starfs-, fjárhags- og framkvæmdaáætlun sviðsins.
  • Ábyrgð á rekstri og viðhaldi mannvirkja í eigu sveitarfélagsins sem og útboðum og gerð samninga í tengslum við rekstur mannvirkja.
  • Samskipti við bæjarstjórn, bæjarráð, fastanefndir sveitarfélagsins á vettvangi málaflokkanna, önnur sveitarfélög, stofnanir, íbúa og aðra hagaðila.
  • Kemur að mótun og framfylgir stefnu sveitarfélagsins í málaflokkum sviðsins.
  • Umsjón með stefnumótun í þeim málaflokkum sem undir hann heyra í samvinnu við fagnefnd sviðsins.
  • Starfar í samræmi við skipulagslög, mannvirkjalög og önnur lög sem heyra undir verksviðið.
  • Ráðgjöf, undirbúningur og framlagning mála fyrir fagnefnd sviðsins og bæjarráð ásamt eftirfylgni mála.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf á sviði verk- og tæknigreina.
  • Réttindi til að starfa sem skipulagsfulltrúi eru æskileg.
  • Reynsla af skipulagsgerð og skipulagsmálum er æskileg.
  • Þekking eða reynsla af verkefnum á sviði byggingar-, framkvæmda, skipulags-, eða umhverfismálum er æskileg.
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu og störfum hjá sveitarfélagi er kostur.
  • Leiðtoga- og samskiptahæfni.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
  • Góð tölvukunnátta og áhugi á stafrænum umbótum.
Auglýsing birt12. nóvember 2026
Umsóknarfrestur25. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Víkurbraut 62, 240 Grindavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar