
Sumarstörf hjá Blush
Fullnægjandi störf í boði
Blush leitar að öflugum og jákvæðum einstaklingi í teymið okkar!
Við viljum bæta við okkur skemmtilegum og drífandi liðsfélaga í verslun okkar að Dalvegi 32b í Kópavogi. Um er að ræða 50–100% starf, með möguleika á áframhaldi.
Starfið felst fyrst og fremst í afgreiðslu og þjónustu í versluninni, en einnig er möguleiki á að taka að sér heimakynningar. Kynningar fara annað hvort fram í verslun Blush eða í heimahúsum.
Við leitum að einstaklingi sem er:
- Jákvæður, sjálfstæður og á auðvelt með mannleg samskipti
- Getur hafið störf ekki síðar en um 15. maí
- Hefur áhuga á að starfa með okkur í sumar og mögulega lengur
Við bjóðum upp á sveigjanlegt starfshlutfall (50–100%), skemmtilegt vinnuumhverfi og góðan starfsanda. Einnig er möguleiki á áframhaldandi hlutastarfi með skóla næsta vetur fyrir réttan aðila.
Ef þú hefur áhuga á að slást í hópinn okkar, heyrðu þá í okkur!
Vinnutími í verslun:
2-5 virka daga frá 10:30-18:15
11:30-18:15 önnur hver helgi
100% starf miðast við 168 vinnustundir.
Um Blush
Blush hefur verið leiðandi í sölu kynlífstækja frá árinu 2011. Verslunin sérhæfir sig í sölu á hágæða kynlífstækjum og leggur áherslu á vönduð og góð endurhlaðanleg tæki. Verslunin er staðsett á Dalvegi 32b í Kópavogi. Blush er framúrskarandi- og fyrirmyndar fyrirtæki og fékk titilinn vörumerki ársins 2021 og 2022. Eigandi Blush, Gerður Huld Arinbjarnar er einnig markaðsmanneskja ársins 2021. Hjá fyrirtækinu er góður starfsandi og gott vinnuumhverfi.
- Afgreiðsla í verslun
- Áfylling á vörum
- Þjónusta viðskiptavini
- Lagerverkefni
- Önnur tilfallandi verkefni
- Góð Íslensku kunnátta
- 23 ára eða eldri
- Reynsla af verslunar- og/eða þjónustustörfum
- Metnaður
- Stundvísi
Íslenska
Enska










