Vörumerking ehf
Vörumerking ehf
Vörumerking ehf

Söluráðgjafi

Vörumerking leitar að öflugum og metnaðarfullum söluráðgjafa sem vill taka virkan þátt í vexti og þróun fyrirtækis sem er leiðandi á sínu sviði.

Við sérhæfum okkur í merkingarlausnum fyrir íslenskan atvinnurekstur – frá einföldum merkimiðum yfir í heildarlausnir fyrir framleiðslu, lager og verslanir. Við vinnum með öflug alþjóðleg vörumerki og leggjum áherslu á fagmennsku, hraða og þjónustu sem skilar raunvirði fyrir viðskiptavini.

Vörumerking er BRCGS gæðavottað fyrirtæki.

Helstu verkefni og ábyrgð

Hlutverk

  • Virk öflun nýrra viðskiptavina
  • Umsjón og þróun viðskiptasambanda
  • Ráðgjöf um merkingar- og prentlausnir
  • Tilboðagerð og eftirfylgni
  • Samstarf við framleiðslu og innkaup
  • Þátttaka í þróun nýrra lausna með framleiðslu og gæðateymi
Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að einstaklingi sem:

  • Hefur reynslu af sölu, helst í iðnaði eða tæknilegri starfsemi (B2B)
  • Er tilbúinn til að fara um landið og afla nýrra viðskipta og þjónusta núverandi viðskiptavini
  • Er drífandi og árangursmiðaður
  • Getur unnið sjálfstætt og tekið ábyrgð
  • Hefur góða samskipta- og samstarfshæfni
  • Hefur áhuga á framleiðslu, tækni og lausnamiðaðri nálgun
  • Hefur drifkraft og útsjónasemi til að ráðleggja viðskiptavinum hvernig hægt er að nýta merkingar og umbúðir í markaðslegum tilgangi til að skara fram úr í samkeppni og auka virði fyrir viðskiptavini
  • Hefur gott vald á íslensku og ensku
Fríðindi í starfi
  •  Styrkur til heilsueflingar
  •  Öflugt starfsmannafélag
  •  Mötuneyti
  •  Hleðslustöðvar fyrir ökutæki og læst hús fyrir hjól
Auglýsing birt23. febrúar 2026
Umsóknarfrestur9. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Suðurhraun 6, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.MarkaðsgreiningPathCreated with Sketch.MarkaðsmálPathCreated with Sketch.ReyklausPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.Viðskiptasambönd
Starfsgreinar
Starfsmerkingar