

Sumarstarf í útflutningsdeild Icelandair Cargo
Icelandair Cargo ehf. óskar eftir að ráða framsækinn og lausnamiðaðan sumarstarfsmann á skrifstofu félagsins í Hafnarfirði.
Um er að ræða starf við þjónustu og söluráðgjöf þar sem reynir á söluhæfileika, þjónustulund, skipulagsfærni, og samstarf. Starfið er tilvalið fyrir námsfólk á sviði viðskipta og/eða sölu eða nýútskrifaða.
Icelandair Cargo er eitt af dótturfyrirtækjum Icelandair. Icelandair Cargo er alþjóðlegt fyrirtæki í flugflutningum með höfuðstöðvar í Reykjavík, skrifstofu á Keflavíkurflugvelli ásamt starfsemi í Belgíu. Fyrirtækið er leiðandi aðili í fraktflutningum á N-Atlantshafi til og frá Íslandi.
Starfssvið:
• Sölu- og þjónusturáðgjöf
• Útreikningar og tilboðsgerð
• Eftirfylgni sölu
• Umsjón með nýtingu á fraktplássi flugvéla
• Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði viðskipta eða önnur menntun sem nýtist í starfi
• Jákvæðni og rík þjónustulund
• Góð samskiptahæfni
• Öguð og sjálfstæð vinnubrögð
• Góð íslensku- og enskukunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 6. maí 2026 og skal umsókn fylgja ferilskrá og kynningarbréf.
Nánari upplýsingar veita:
Haraldur Haraldsson, deildarstjóri útflutningssviðs, [email protected]
Guðlaug Ólafsdóttir, People manager, [email protected]
Stefna Icelandair er að stuðla að jafnrétti og fjölbreytileika á meðal starfsfólks og hvetur einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um.
Íslenska
Enska










