Parka Lausnir ehf.
Parka Lausnir ehf.

Sölu- og markaðsfulltrúi Tjalda.is

Við leitum að drífandi og sjálfstæðum einstaklingi til þess að taka að sér heildarumsjón með Tjalda.is. Tjalda.is er vefsíða í eigu Parka Lausna þar sem hægt er að fletta upp, fá upplýsingar um og bóka tjaldsvæði víðsvegar um Ísland. Viðkomandi hefur yfirumsjón yfir sölu- og markaðssetningu á vefsíðunni og bókunarkerfi sem þjónustað er af Parka Lausnum. Þetta er fjölbreytt og spennandi starf þar sem viðkomandi fær tækifæri til að móta og þróa vöruna og vörumerkið í nánu samstarfi við eigendur. Starfið hentar þeim vel sem vilja stíga sín fyrstu skref í sjálfstæðum verkefnum og vinnubrögðum að loknu viðeigandi framhaldsnámi. Starfið er tímabundið, 8-12 mánuðir með möguleika á framlengingu á ráðningarsamningi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Heildarumsjón með Tjalda.is, sölu, markaðsmálum, vörumerkinu, bókunarkerfi og vefsíðu.

  • Byggja upp og viðhalda góðum tengslum við rekstraraðila tjaldsvæða um land allt.

  • Vera tengiliður við viðskiptavini, sem nýta bókunarkerfi Parka Lausna.

  • Drífa áfram sölu og markaðssetningu gagnvart mögulegum nýjum viðskiptavinum.

  • Umsjón með vefsíðu, meðal annars þarf viðkomandi að geta séð um minni háttar breytingar og uppfærslur.

  • Greina þarfir og leggja fram tillögur að stærri breytingum og þróun.

  • Eiga og þróa vörumerkið Tjalda.is.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • 20 ára eða eldri

  • Bakgrunnur í viðskiptafræði, hagfræði, markaðsfræði eða sambærilegt nám

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

  • Frumkvæði, drifkraftur og metnaður til að ná árangri

  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund

  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

  • Grunnþekking á vefumsjónarkerfum og markaðstólum er kostur

  • Reynsla eða þekking á hugbúnaðarþróun er kostur

  • Áhugi á útivist, ferðamennsku og íslenskri náttúru er kostur

Fríðindi í starfi
  • Fjölbreytt og krefjandi starf hjá vaxandi fyrirtæki

  • Mikið sjálfstæði og tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á þróun vörumerkis

  • Laun samkvæmt kjarasamningi, auk árangurstengdra launa

  • Gott og sveigjanlegt starfsumhverfi

Auglýsing birt28. apríl 2026
Umsóknarfrestur5. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Kringlan 4-6, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.Email markaðssetningPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Markaðssetning á netinuPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Skilgreining markhópaPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.VefumsjónPathCreated with Sketch.ViðskiptasamböndPathCreated with Sketch.Vörumerkjastjórnun
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar