

Sumarstarf á Austurlandi
Hentar þér að vinna í viku og vera í fríi í viku í sumar?
Securitas á Austurlandi óskar eftir að ráða jákvæða og kraftmikla einstaklinga í okkar frábæra teymi í sumar, til að taka þátt í að viðhalda góðu viðbragði og framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina okkar.
Starfið felur í sér almenna þjónustu við viðskiptavini Securitas á Austurlandi, viðbragð á gæslustað, ásamt því að tryggja almennt öryggi og eftirlit með hvers konar öryggisþáttum viðskiptavina okkar.
Ef þú...
- Býrð yfir góðri þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Sýnir frumkvæði í starfi og getu til að vinna sjálfstætt
- Hefur metnað til að takast á við krefjandi verkefni
- Býrð yfir góðri íslenskukunnátta
... þá gætum við verið að leita af þér
Um er að ræða sumarstarf í vaktavinnu, möguleiki er á áframhaldandi starfi eftir sumarið. Störfin eru ýmist unnin á dag- og næturtíma, 12 tíma í senn sjö daga vikunnar, með góðum fríum á milli.
Starfið hentar öllum kynjum sem hafa náð 20 ára aldri með góða íslenskukunnáttu, hreint sakavottorð og gilt ökuskírteini. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og er öllum umsóknum svarað.
Umsóknarfrestur er til 24.mars 2026. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og er öllum umsóknum svarað. Nánari upplýsingar veitir Páll Marinó Jónsson verkefnastjóri gæslusviðs í síma 580-7000.
Íslenska







