Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Sumarstarf 2024 - Farþegaakstur

Sumarstarf 2024 - Farþegaakstur

Við leitum að þjónustulunduðum og glaðlyndum einstaklingum til að sinna þjónustu við flugfélög, farþega, starfsfólk og aðra viðskiptafélaga okkar á Keflavíkurflugvelli. Óskað er eftir snyrtilegum einstaklingum sem hafa áhuga á að vinna í fyrirtæki þar sem umhverfi, öryggi og framúrskarandi þjónusta eru höfð að leiðarljósi. Um er að ræða bæði hluta- og heilsdagsstörf næstkomandi sumar. 

Gestir okkar og viðskiptafélagar eru bæði íslenskir og erlendir og því gerum við kröfu um góða tungumálafærni í öllum störfum.

Sumarstörf á flugvallarsvæðinu eru bæði fjölbreytt og krefjandi en við kappkostum að veita starfsfólki gott vinnuumhverfi og góðan starfsanda. Við bjóðum upp á fyrsta flokks mötuneyti og allt starfsfólk fær aðgang að líkamsræktarstöðvum meðan það er í starfi hjá Isavia. 

Allir umsækjendur þurfa að standast bakgrunnsathugun lögreglu og framvísa hreinu sakarvottorði í lokaskrefi umsóknarferilsins. Þá þurfa þeir sem fá boð um starf að geta sótt undirbúningsnámskeið áður en þeir hefja störf og standast próf í lok námskeiðsins. Tímalengd námskeiða fer eftir eðli starfa.

Þetta er umsókn um starf í farþegaakstri

Starfsfólk í farþegaakstri á Keflavíkurflugvelli sinnir akstri með flugfarþega til og frá stæðum á Keflavíkurflugvelli. Önnur verkefni eru umhirða rútu og bíla ásamt öðrum tilfallandi verkefnum. Gerð er krafa um að umsækjendur hafi lokið meiraprófi D-réttindi fyrir farþegaakstur. Í farþegaakstri er unnið samkvæmt 5-5-4 vaktakerfi á 12 tíma vöktum.

Úrvinnsla umsókna mun hefjast um leið og þær berast og byrjað verður að ráða í störfin áður en umsóknarfrestur rennur út. Við hvetjum því áhugasama einstaklinga, án tillits til kyns og uppruna til að sækja um sem allra fyrst.

Nánari upplýsingar um Isavia má finna hér á heimasíðu okkar.

Frekari upplýsingar um störfin eða umsóknarferlið veita mannauðsráðgjafar Isavia á netfanginu radningar@isavia.is

Auglýsing stofnuð16. apríl 2024
Umsóknarfrestur28. maí 2024
Staðsetning
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar