Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Sumarafleysing - Móttökuritari heilsugæslu HVE Grundafirði

HVE Grundarfirði óskar eftir starfsmanni til að sinna stöðu móttökuritara í um 4 vikur sumarið 2026. Starfshlutfall er 60-100% eða eftir samkomulagi.

Í boði er fjölbreytt, áhugavert og krefjandi starf í lifandi umhverfi þar sem reynir á góða samskiptahæfni, ríka þjónustulund og fagmennsku. Um er að ræða sumarafleysingu og upplýsingar um tímaramma má fá hjá yfirhjúkrunarfræðing stöðvarinnar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka, afgreiðsla og samskipti við skjólstæðinga

  • Símsvörun, ýmis konar umsýsla, uppgjör og skráning gagna

  • Önnur tilfallandi verkefni

  • Samskipti við aðrar deildir HVE

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun æskileg

  • Starfið krefst hæfni og lipurðar í samskiptum, trúmennsku og nákvæmni í vinnubrögðum

  • Góð tölvukunnátta

  • Viðkomandi þarf að hafa gott vald á íslensku máli og geta átt góð tjáskipti á ensku

Auglýsing birt5. maí 2026
Umsóknarfrestur15. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hrannarstígur 7, 350 Grundarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar