Framtíðarfólk ehf.
Framtíðarfólk ehf.

Starfsmaður í sérkennsluteymi á leikskólanum Áshamri



Leikskólinn Áshamar í Hafnarfirði leitar að ábyrgum og áhugasömum einstaklingi til starfa við stuðning við börn með fjölbreyttar þarfir.

Í boði eru bæði hlutastarf og fullt starf (100%). Nánara starfshlutfall er ákveðið í samráði við viðkomandi.

Hjá okkur er stuðningur við börnin teymisvinna. Við leggjum áherslu á að starfsfólk vinni náið saman, deili þekkingu og verkefnum og styðji hvert annað í daglegu starfi. Innan skólans starfar öflugt og reynslumikið sérkennsluteymi sem veitir nýjum samstarfsmanni faglega leiðsögn. Markmið okkar er að skapa öruggt, jákvætt og inngildandi umhverfi þar sem hvert barn fær tækifæri til að njóta sín.

Helstu verkefni og ábyrgð



Að styðja börn með fjölbreyttar stuðningsþarfir í leik, samskiptum og daglegu starfi.

Að vinna í nánu samstarfi við kennara, leiðbeinendur og sérkennsluteymi skólans.

Að taka þátt í að útfæra og fylgja eftir einstaklingsmiðuðum stuðningi með leiðsögn fagfólks.

Að stuðla að þátttöku, öryggi og vellíðan barnanna í leikskólasamfélaginu.

Menntunar- og hæfniskröfur



Hefur gott viðmót, þolinmæði og góða samskiptahæfni.

Er jákvæður, áreiðanlegur og nýtur þess að vinna með börnum.

Hefur áhuga á að læra, taka þátt í teymisvinnu og þróast í starfi.

Hefur reynslu af starfi með börnum sem þurfa stuðning eða áhuga á því sviði.

Menntun á sviði leikskólakennslu, sérkennslu, þroskaþjálfunar eða skyldra greina er kostur en ekki skilyrði. Við hvetjum einnig öfluga leiðbeinendur til að sækja um. Við horfum til reynslu, mannkosta, samstarfshæfni og áhuga á velferð barna.

Auglýsing birt9. nóvember 2026
Umsóknarfrestur24. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Áshamar
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar