Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar
Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar
Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar

Stuðningsfulltrúi við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

Laus er til umsóknar staða stuðningsfulltrúa við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar. Um hlutastarf er að ræða. Staðan er laus frá og með 1.ágúst 2026. Leitað er að stuðningsfulltrúa með starfshæfni til að starfa með nemendum á með sértæka námsörðugleika á yngsta stigi, miðstigi og elsta stigi. Mikilvægt er að umsækjandi geti starfað á öllum stigum. Reynsla af vinnu með börnum er æskileg.

Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar eru tæplega 100 nemendur. Skólinn er hluti af Skólamiðstöð þar sem náin samvinna er við leikskóla, tónlistarskóla og bókasafn. Nóg er af lausu húsnæði á Fáskrúðsfirði og í sveitarfélaginu. Mikil áhersla er lögð á teymisvinnu á öllum sviðum skólastarfsins og sameiginlegri ábyrgð í starfi, ekki síst í stjórnendateymi, umsjónarkennarateymum og lausnarteymi skólans.

Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar er mikil áhersla lögð á velferð nemenda og starfsfólks og litið svo á að hún sé lykillinn að árangri í öllum verkefnum. Unnið er í anda leiðsagnarnáms og byrjendalæsis. Unnið er eftir metnaðarfullri áætlun gegn einelti og lögð er áhersla á ART kennslu. Stefnumörkun skólans tekur meðal annars mið af uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar sem miðar að því að ýta undir ábyrgðarkennd og sjálfsstjórn barna og unglinga. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð. Kjörorð skólans eru ,,ánægja, ábyrgð, árangur". Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu, www.fask.is.

Laun eru samkvæmt Sambandi íslenskra sveitafélaga og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til og með 10.júní 2026

Umsóknum skal fylgja gott yfirlit yfir nám og störf, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi. Allir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.

Allar nánari upplýsingar gefur: Jóhanna Guðnadóttir skólastjóri s. 475-9020 eða á [email protected]

Helstu verkefni og ábyrgð

·       Aðstoðar nemendur og reynir að ýta undir færni og sjálfstæði þeirra.

·       Vinnur eftir áætlun sem útbúin hefur verið í samráði kennara, deildarstjóra sérkennslu og annarra ráðgjafa.

·       Gæsla nemenda í forföllum kennara.

·       Situr fag-, teymis- og foreldrafundi eftir því sem við á.

·       Þátttaka í starfi grunnskóla í samráði og að óskum skólastjóra.

Menntunar- og hæfniskröfur

·       Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. Evrópska tungumálarammanum

·       Menntun sem nýtist í starfi.

·       Ábyrgð í starfi og stundvís

·       Sjálfstæði í vinnubrögðum.

·       Samskipta- og samstarfshæfni

·       Skipulagshæfileikar

Auglýsing birt27. maí 2026
Umsóknarfrestur10. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hlíðargata 56, 750 Fáskrúðsfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar