Íþróttafélagið Grótta
Íþróttafélagið Grótta
Íþróttafélagið Grótta

Stuðningsaðili á sumarnámskeið

Grótta auglýsir eftir stuðningsaðila á leikjanámskeið

Grótta óskar eftir ábyrgðarfullum, jákvæðum og umhyggjusömum stuðningsaðila fyrir barn með fötlun á leikjanámskeiði Gróttu í sumar.

Starfið felst í því að fylgja barninu eftir á námskeiðinu, veita félagslegan stuðning og aðstoða við þátttöku í leikjum og daglegu starfi námskeiðsins eftir þörfum.

Markmiðið er að gera barninu kleift að taka virkan þátt í námskeiðinu, njóta sín í öruggu og jákvæðu umhverfi og fá þann stuðning sem það þarf yfir daginn.

Vinnan yrði um 4 tímar á dag, annaðhvort frá 08:00–12:00 eða 12:00–16:00.

Tímabil:
15. júní – 10. júlí
og
4.–14. ágúst

Starfið hentar vel fyrir einstakling sem hefur áhuga á að vinna með börnum, er ábyrgur, þolinmóður og jákvæður í samskiptum.

Auglýsing birt27. maí 2026
Umsóknarfrestur9. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Suðurströnd 2-8, 170 Seltjarnarnes
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar