Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Stuðningsfulltrúi óskast í Skammtímadvöl Árlandi 9

Skammtímadvöl Árland 9 leitar að metnaðarfullum og jákvæðum stuðningsfulltrúum til starfa með fötluðum börnum og ungmennum. Við leitum að fólki sem hefur áhuga á að vinna með börnum og ungmennum og vill taka þátt í að skapa þeim öruggt, hlýlegt og styðjandi umhverfi.

Stuðningsfulltrúar starfa samkvæmt stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum fatlaðs fólks með það að markmiði að efla færni, auka sjálfstæði, styrkja jákvæða sjálfsmynd og stuðla að auknum lífsgæðum.

Skammtímadvölin í Árlandi hlaut á síðasta ári viðurkenningar í könnuninni Stofnun ársins sem fyrirmyndarstarfsstaður og hástökkvari ársins. Einnig lenti starfsstaðurinn í 3. sæti í flokki millistórra starfsstaða.

Um er að ræða tímbunda eða ótímabundna stöðu í 50–80% starfshlutfalli. Unnið er á dag-, kvöld-, nætur- og helgarvöktum aðra hvora helgi. Börnin eru yfirleitt í skóla og frístundastarfi á virkum dögum og því eru aðeins morgun- og kvöldvaktir á þeim tíma. Æskilegt er að umsækjendur geti sinnt öllum tegundum vakta.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Styðja börn og ungmenni við athafnir daglegs lífs, heimilishald og sjálfshjálp.
  • Sinna umönnun, fylgjast með andlegri og líkamlegri líðan og veita aðstoð varðandi heilsufarslega þætti eftir þörfum.
  • Styðja börn og ungmenni til virkrar þátttöku í samfélaginu, meðal annars með því að efla félagstengsl og taka þátt í afþreyingu, menningar- og íþróttastarfi.
  • Framfylgja einstaklingsáætlunum í samráði við börn, ungmenni og aðstandendur eftir því sem við á.
  • Skrá og meðhöndla upplýsingar samkvæmt verklagi starfsstaðarins.
  • Taka þátt í fundum og teymisvinnu.
  • Sinna öðrum verkefnum samkvæmt ákvörðun yfirmanns.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af starfi með börnum, ungmennum eða fötluðu fólki er æskileg.
  • Menntun eða nám sem nýtist í starfi er kostur.
  • Mjög góð samskiptahæfni og jákvætt viðhorf.
  • Þolinmæði og lausnamiðuð nálgun í krefjandi aðstæðum.
  • Frumkvæði, yfirvegun og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Gilt bílpróf.
  • Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri.
  • Íslenskukunnátta að lágmarki B1 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
  • Styttri vinnuvika
  • Samgöngu- og heilsuræktarstyrkir
  • Sund- og menningarkort
Auglýsing birt13. október 2026
Umsóknarfrestur27. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Árland 9, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Starfsgreinar
Starfsmerkingar