
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Stuðningsfulltrúi
Norðurmiðstöð leitar af starfsmanni til að veita stuðning við fatlað fólk. Í starfinu felst að efla færni notenda til að lifa sjálfstæðu lífi innan og utan heimilis. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt og tekur þjónustan mið af því að mæta notendum út frá hugmyndafræði um sjálfstætt líf, þjónandi leiðsögn og valdeflingu.
Unnið er á blönduðum vöktum, dagvöktum, kvöldvökum, næturvöktum og helgarvöktum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Einstaklingsmiðuð þjónusta
- Hvetja og styðja notendur til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð
- Stuðningur og hvatning við athafnir daglegs lífs
- Vinna eftir hugmyndafræði, lögum og reglum í málefnum fatlaðs fólks
Menntunar- og hæfniskröfur
- Þekking og reynsla í vinnu með fólki æskileg
- Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð
- Íslenskukunnátta B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
Fríðindi í starfi
Hjá Reykjavíkurborg er unnið samkvæmt betri vinnutíma í vaktavinnu og ýmis hlunnindi í boði fyrir starfsfólk
Auglýsing birt10. júlí 2024
Umsóknarfrestur14. ágúst 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Efstaleiti 1, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHreint sakavottorðJákvæðniSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSveigjanleiki
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (5)

Sjúkraliði Efri byggð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Iðjuþjálfi í endurhæfingarteymi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Stuðningsfulltrúi óskast á íbúðakjarna í Grafarvogi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hjúkrunarfræðingur Droplaugarstaðir MND deild
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Umönnun Droplaugarstaðir
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Sambærileg störf (12)

Skóla- og frístundaliði í Drekasel - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Fjölbreytt og skemmtilegt starf á Tannlæknastofu
Tannlæknastofa Grafarvogs

Óska eftir konum í vaktavinnu
NPA miðstöðin

Aðstoð í eldhúsi / Kitchen assisant
Grillmarkaðurinn ehf.

Óska eftir aðstoðarkonu í fjölbreytt starf
NPA miðstöðin

Starfsfólk á Heimili fyrir Börn
Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar

Stuðningsfulltrúi óskast á miðstig
Kársnesskóli

Starfsmaður við afgreiðslu / aðstoð
Sjúkraþjálfarinn ehf.

Starfsmenn óskast í stoðþjónustu við fötluð börn
Akraneskaupstaður

Stuðningsfulltrúi óskast
Helgafellsskóli

Aðstoðarmaður tannlæknis
Breiðaklöpp

Stuðningsfulltrúi óskast á íbúðakjarna í Grafarvogi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið