
Kársnesskóli

Stuðningsfulltrúi óskast á miðstig
Laus er staða stuðningsfulltrúa í Kársnesskóla
Vegna forfalla auglýsum við eftir starfsmanni til að sinna stuðningi í Kársnesskóla. Kársnesskóli er grunnskóli í vesturbæ Kópavogs með 400 nemendur í 5. - 10. bekk og 65 starfsmenn. Í skólanum ríkir góður starfsandi og gildi skólans eru virðing, þekking, ábyrgð og ánægja. Unnið er samkvæmt uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Í Kársnesskóla eru allir nemendur með spjaldtölvur og áhersla er á fjölbreytta kennsluhætti.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoðar nemendur við daglegar athafnir og virka þátttöku í bekkjarstarfi. Stuðningur við nemendur í félagslegum samskiptum innan og utan kennslustofu.
- Aðstoðar nemendur við að ná settum markmiðum samkvæmt námskrá og námsáætlunum undir leiðsögn kennara.
- Sér um gæslu með ákveðnum bekkjum eða/og hópum í útivist.
- Fylgir einum eða fleiri nemendum eftir á ferðum þeirra um skólann, í frímínútum og vettvangsferðum.
- Aðstoðar nemendur í matsal eftir þörfum.
- Vinnur að undirbúningi skólastarfs á starfsdögum kennara undir verkstjórn kennara eða skólastjórnenda.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla og áhugi á starfi með börnum
- Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum
- Viðkomandi þarf að vera skipulagður, sýna sjálfstæði og frumkvæði í starfi
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Framhaldskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi æskileg
- Mjög góð íslenskukunnátta´
Auglýsing birt8. október 2026
Umsóknarfrestur22. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Kópavogsbraut 57, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiSjálfstæð vinnubrögðStundvísiÞolinmæði
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Leikskólakennari
Heilsuleikskólinn Kór

Deildarstjóri - velkomin(n) í hópinn
Heilsuleikskólinn Kór

Sérkennari eða þroskaþjálfi - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær

Félagsmiðstöðin Garðalundur - forstöðumaður
Garðabær

Verkefnastjóri listasmiðju (atelierista)
Leikskólinn Maríuborg

Stuðningsfulltrúi óskast
Helgafellsskóli

Leikskólakennari óskast
Sveitarfélagið Strandabyggð

Okkur vantar leikskólakennara og/eða uppeldismenntaðan starfsmann í Arnarsmára
Arnarsmári

Kennari/leiðbeinandi óskast í leikskólann Nóaborg
Leikskólinn Nóaborg

Stuðningsfulltrúi óskast við Eskifjarðarskóla
Eskifjarðaskóli

Starfsfólk óskast í Leirvogstunguskóla
Leirvogstunguskóli

Kennari – Leikskólinn Tjarnarás
Hafnarfjarðarbær