

Félagsmiðstöðin Garðalundur - forstöðumaður
Laust er til umsóknar starf forstöðumanns í félagsmiðstöðinni Garðalundi frá 1. nóvember 2026.
Hlutverk félagsmiðstöðvarinnar er að styðja við unglinga í gegnum fjölbreytt tómstundastarf í Garðaskóla. Megin markmið starfsins er að veita þeim tækifæri til samveru og stunda heilbrigðar tómstundir undir leiðsögn reyndra tómstundaleiðbeinenda. Leiðarljós starfsins er að efla félagsfærni, sjálfsmynd og virkni unglinganna. Unnið er út frá hugmyndafræði barna- og unglingalýðræðis, hugmyndum og áhugasviði nemenda skólans. Félagsmiðstöðin á einnig samstarf við aðrar félagsmiðstöðvar á vegum Garðabæjar en þær eru Elítan í Álftanesskóla, Klakinn í Sjálandsskóla, Urri í Urriðaholtsskóla og Torgið Ungmennahús.
Leitað er að skipulögðum, hugmyndaríkum og traustum einstaklingi sem hefur ánægju af að vinna með ungmennum og börnum og er tilbúinn til að leggja sig fram um að mæta þörfum þeirra og möguleikum.
- Ber ábyrgð á faglegri stefnumótun, þróun og gæðum starfs félagsmiðstöðvarinnar með uppeldis-, lýðræðis- og forvarnarsjónarmið að leiðarljósi
- Ber ábyrgð á daglegum rekstri félagsmiðstöðvarinnar og að starfsemin sé innan samþykktra fjárheimilda
- Ber ábyrgð á húsnæði, búnaði, öryggismálum og góðri umgengni.
- Sinnir reglulegum samskiptum við foreldra og forráðamenn og stuðlar að virku samstarfi heimilis, skóla og félagsmiðstöðvar.
- Hefur mannaforráð og ber ábyrgð meðal annars á ráðningum, handleiðslu starfsmannavinnuskipulagi, starfsþróun og símenntun
- Skipuleggur og leiðir fjölbreytt félags-, tómstunda- og forvarnastarf fyrir börn og ungmenni
- Skipuleggur og/eða hefur umsjón með hópastarfi/klúbbastarfi
- Styður við þátttöku í starfinu, frumkvæði og lýðræðislega aðkomu í samvinnu við börn og ungmenni
- Vinnur í nánu samstarfi við foreldra, skóla, skólaþjónustu, barnavernd, lögreglu og aðra hagaðila að farsæld barna og ungmenna
- Tekur þátt í samráðs- og teymisvinnu og er tengiliður félagsmiðstöðvarinnar gagnvart samstarfsaðilum innan og utan sveitarfélagsins
- Ber ábyrgð á upplýsingamiðlun, markaðssetningu og kynningu á starfsemi félagsmiðstöðvarinnar
- Háskólamenntun (BA, B.Ed. eða BS gráða) á sviði tómstunda- og félagsmálafræði, uppeldis- og menntunarfræða, kennslufræða eða annarrar sambærilegrar menntunar sem nýtist í starfi.
- Reynsla af starfi með börnum og/eða unglingum í frístundastarfi
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Enskukunnátta á stigi B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Þekking og/eða reynsla af rekstri og stjórnun
- Góð færni í framsetningu texta og upplýsingamiðlun
- Góð almenn tölvukunnátta og hæfni til að nýta upplýsingatækni í starfi
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi
- Hæfni til að leiða teymi og byggja upp jákvætt starfsumhverfi
- Reynsla af skipulagningu og framkvæmd verkefna og viðburða er æskileg
- Heilsuræktarstyrkur að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort eftir 3 mánuði í starfi
- Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.
- Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu
- Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn
Íslenska
Enska










