Rimaskóli
Rimaskóli

Stærðfræðikennari á unglingastigi í Rimaskóla - tímabundið

Langar þig að starfa í framsæknu skólasamfélagi þar sem fagmennska, samvinna og metnaður fyrir námi og velferð nemenda fara saman? Þá gæti Rimaskóli verið rétti staðurinn fyrir þig.

Við leitum að öflugum og áhugasömum stærðfræðikennara til tímabundinna starfa vegna fæðingarorlofs. Ráðningartími er frá lokum febrúar 2027 og út skólaárið 2026-2027. Starfið býður upp á einstakt tækifæri til að taka þátt í öflugu skólastarfi og starfa með reyndu og samstilltu fagteymi á unglingastigi. Viðkomandi kennir stærðfræði í 7.-10. bekk og vinnur í nánu samstarfi við tvo aðra stærðfræðikennara. Kennarateymið ber sameiginlega ábyrgð á skipulagi kennslu, þróun verkefna, námsmati og aðlögun náms að ólíkum þörfum nemenda.

Hér gefst tækifæri til að taka þátt í faglegu samstarfi þar sem áhersla er lögð á stöðuga þróun, nýsköpun og gagnreynda kennsluhætti. Starfinu fylgir umsjón með einum 9. bekk. Umsjónarkennari leiðir bekkjarsamfélagið áfram með einum umsjónartíma og einum lífsleiknitíma á viku og gegnir lykilhlutverki í að skapa öruggt, jákvætt og hvetjandi námsumhverfi fyrir nemendur.

Í Rimaskóla leggjum við ríka áherslu á jákvæð samskipti, ábyrgð og virðingu. Við vinnum samkvæmt hugmyndafræði Uppbyggingar sjálfsaga (Uppeldi til ábyrgðar) og styðjum nemendur í að taka ábyrgð á eigin námi, hegðun og samskiptum. Kennslan byggir á Aðalnámskrá grunnskóla og við stöndum nú á spennandi tímamótum við innleiðingu nýs námsmats í stærðfræði. Nýr kennari fær því tækifæri til að taka virkan þátt í mótun kennslu- og matsaðferða sem styðja við árangur allra nemenda. Við bjóðum upp á öflugt faglegt lærdómssamfélag, góða samvinnu starfsfólks og fjölbreytt tækifæri til starfsþróunar.

Rimaskóli er lifandi vinnustaður þar sem hugmyndir fá að blómstra og þar sem starfsfólk vinnur saman að því að skapa framúrskarandi skólastarf fyrir nemendur. Ef þú hefur brennandi áhuga á stærðfræðikennslu, trú á getu allra nemenda til að ná árangri og vilt taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi, hvetjum við þig til að sækja um.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Kennsla í stærðfræði á unglingastigi (7.-10. bekk). 
  • Umsjón með nemendum í 9. bekk (einn af þremur bekkjum). 
  • Skipulagning, framkvæmd og mat á kennslu í samstarfi við stærðfræðiteymi skólans.
  • Aðlögun kennslu og námsmats að fjölbreyttum þörfum nemenda.
  • Virk þátttaka í faglegu samstarfi, þróunarstarfi og teymisvinnu.
  • Samstarf við foreldra, starfsfólk og aðra fagaðila eftir þörfum.
  • Stuðla að jákvæðu, öruggu og hvetjandi námsumhverfi í anda Uppbyggingar sjálfsaga (Uppeldi til ábyrgðar).
  • Þátttaka í innleiðingu nýrrar aðalnámskrár og þróun námsmats í stærðfræði. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu í grunnskóla samkvæmt lögum nr. 95/2019 um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda. 
  • Menntun í stærðfræði, stærðfræðikennslu eða öðrum raungreinum sem nýtist í starfi. 
    Reynsla af kennslu á grunnskólastigi er kostur. 
  • Áhugi á þróun kennsluhátta og námsmats í stærðfræði. 
  • Jákvætt viðhorf, frumkvæði og faglegur metnaður. 
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu. 
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð. 
  • Áhugi á að stuðla að farsælu samstarfi við nemendur, foreldra og samstarfsfólk. 
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti. 
Auglýsing birt27. nóvember 2026
Umsóknarfrestur11. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Rósarimi 11, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar