Akureyri
Akureyri
Akureyri

Lundarskóli: Grunnskólakennari á unglingastigi

Við Lundarskóla á Akureyri eru lausar til umsóknar allt að tvær ótímabundnar stöður grunnskólakennara á unglingastigi, hvor um sig í 100% starfshlutfalli. Ráðið verður í stöðurnar frá 1. janúar 2027 eða samkvæmt samkomulagi.

Leitað er að metnaðarfullum einstaklingum sem hafa sýnt árangur í störfum sínum. Áhersla er lögð á að þeir vinni að vellíðan nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.

Megináhersla starfsins er á umsjónarkennslu á unglingastigi og/eða kennslu í fjölbreyttum námsgreinum, hvort sem um er að ræða bóknáms- og/eða sérgreinar.

Í Lundarskóla er unnið með SMT skólafærni og heilsueflandi skóla. Lundarskóli leggur áherslu á teymisvinnu og framþróun í skólastarfi.

Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, virðing, vellíðan.

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.lundarskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sinnir kennslu nemenda í samstarfi og samvinnu við aðra starfsmenn skólans og ber ábyrgð á starfi sínu gagnvart skólastjóra.
  • Sinnir kennslu og hefur umsjón með hóp nemenda í árgangi og kemur að öllum þeirra málefnum innan skólans.
  • Sinnir námsaðlögun og kennslu nemenda í samstarfi við námsaðlögunarteymi skólans. Á jafnframt gott samstarf við aðra starfsmenn skólans.
  • Skipuleggur nám, kennslu og námsmat nemenda eftir því sem við á.
  • Tekur þátt í foreldrasamstarfi.
  • Tekur almennt þátt í þróunarstarfi skólans.
  • Fylgir stefnu skólans í starfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla.
  • Hefur á valdi sínu hæfni til að kenna fjölbreyttar námsgreinar á unglingastigi.
  • Hefur á valdi sínu fjölbreyttar kennsluaðferðir sem taka mið af mismunandi þörfum, áhuga og getu nemenda.
  • Þekking og reynsla af teymisvinnu og teymiskennslu.
  • Góð þekking á kennslu- og uppeldisfræði.
  • Þekking og reynsla af leiðsagnarnámi.
  • Gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli.
  • Áhugi á kennslu og vinnu með börnum.
  • Frumkvæði og samstarfsvilji.
  • Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum.
  • Góðir skipulagshæfileikar.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Að vera reiðubúinn til að leita nýrra leiða í skólastarfi og áhugi á þróunarstarfi.
  • Reglusemi og samviskusemi.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt27. nóvember 2026
Umsóknarfrestur11. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dalsbraut/Lundarskóli 147482, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar