
Leikskólinn Tjarnarskógur
Leikskólinn Tjarnarskógur er 9 deilda leikskóli með 150 börn á tveimur starfsstöðvum. Leikskólinn Tjarnarskógur er að vinna að innleiðingu á Uppeldi til ábyrgðar og horfir til fjölgreindarkenningar Howard Gardners í starfsaðferðum sínum. Einkunnarorð skólans eru: gleði, virðing, samvinna og fagmennska.

Leikskólakennari
Tjarnarskógur á Egilsstöðum auglýsir lausa til umsóknar stöðu leikskólakennara í 100% starf. Ráðið er í starfið til framtíðar, frá áramótum, eða eftir nánara samkomulagi.
Um er að ræða fjölbreytt og lifandi starf og eru einkunnarorð skólans gleði, virðing, samvinna og fagmennska.
Næsti yfirmaður er leikskólastjóri Tjarnarskógar.
Finna má nánari upplýsingar um leikskólann á heimasíðu Múlaþings: https://www.mulathing.is/is/thjonusta/menntun/leikskolar/tjarnarskogur
Helstu verkefni og ábyrgð
- Starfið felur í sér almenna kennslu
- Vinnur að uppeldi og menntun barnanna
- Tekur þátt í gerð skólanámskrá mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra
- Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra
- Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðarmenn barnanna
- Sinnir þeim verkefnum er varða uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum
- Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn). Ef ekki fæst kennari verður ráðinn starfskraftur með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi tímabundið.
- Reynsla af starfi með börnum
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Áhugi á að vinna með börnum
- Sveigjanleiki, áreiðanleiki og stundvísi
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð líkamleg heilsa
- Góð íslenskukunnátta
- Hreint sakavottorð
Auglýsing birt23. nóvember 2026
Umsóknarfrestur7. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Tjarnarlönd 10, 700 Egilsstaðir
Skógarlönd 5, 700 Egilsstaðir
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiKennariSjálfstæð vinnubrögðSkipulagStundvísi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Leiðbeinandi í leikskóla - tímabundin ráðning
Leikskólinn Tjarnarskógur

Leikskólakennari
Heilsuleikskólinn Urriðaból II

Viltu vera með?
LFA ehf.

Þorláksskóli leitar að fagfólki eða stuðningsfulltrúa
Þorláksskóli

Leikskólakennari/leiðbeinandi
Leikskólinn Álftaborg

Leikskólakennari við leikskólann Kærabæ, Fáskrúðsfirði
Leikskólinn Kæribær

Sérkennari/ísatkennari á unglingastig óskast í Kópavogsskóla
Kópavogsskóli

Leikskólakennari á Hnoðraból
Borgarbyggð

Sérkennslustjóri - Leikskólinn Tjarnarskógur
Leikskólinn Tjarnarskógur

Deildarstjóri - HOLT
Leikskólinn Holt

Leikskólakennari / leiðbeinandi Seljakot
Leikskólinn Seljakot

Starfsmaður í stuðning/sérkennslu í leikskólanum Engjaborg
Leikskólinn Engjaborg