

Stjórnandi í framkvæmdum
Viltu taka þátt í að leiða stór og krefjandi verkefni hjá einu af framsæknustu og öflugustu verktakafyrirtækjum landsins?
Hjá Ístaki leggjum við áherslu á skapandi og lausnamiðað vinnuumhverfi þar sem öryggi og velferð starfsfólks er alltaf í fyrirrúmi. Við erum stolt af þeim innviðum sem við byggjum fyrir framtíðina og leitum nú að drífandi og metnaðarfullum einstaklingi til að stýra mikilvægum verkþáttum á okkar vinnustöðum.
Sem stjórnandi í framkvæmdum hjá Ístaki muntu bera ríka ábyrgð á tæknilegum lausnum og framvindu okkar stærstu verkefna. Starfið byggir á grunni tæknivinnu en felur í sér víðtækari ábyrgð á mannafla, gæða- og öryggismálum auk yfirumsjónar með stærri verkhlutum. Þú munt vinna náið með staðarstjórum og öflugu teymi okkar að því að tryggja að verkefni skili sér í hæsta gæðaflokki og á réttum tíma.
- Yfirumsjón með ákveðnum verkþáttum, þ.m.t. aðstoð við mönnun verkefna og utanumhald um mannaflaþörf.
- Magntaka og rýni verkgagna fyrir tæknilegar úrlausnir og tilboðsgerð.
- Skipulagning framkvæmda, gerð verkáætlana og vinnuteikninga.
- Eftirlit með undirverktökum, rýni á samningum og sannreyning framvindureikninga.
- Gerð og eftirfylgni með innkaupaáætlunum í samráði við innkaupadeild.
- Umsjón, uppfærsla og eftirfylgni áætlana um öryggi, heilsu og umhverfi (ÖHU) auk gæðaúttekta.
- Samskipti við verkkaupa, eftirlitsaðila og starfsfólk á verki.
- Ábyrgð á gæðum og öryggi þeirra verkefna sem falin eru og frumkvæði að jákvæðri öryggismenningu.
- Háskólapróf í verkfræði eða skyldum tæknigreinum.
- Nokkurra ára starfsreynsla úr verkfræði eða byggingariðnaði er áskilin.
- Stjórnunarreynsla er kostur.
- Framúrskarandi lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni til að leiða fólk.
- Áreiðanleiki, sjálfstæð vinnubrögð og nákvæmni.
- Góð enskukunnátta er nauðsynleg, og íslenskukunnátta er mikill kostur.
Íslenska
Enska










