Fortis lögmannsstofa
Fortis lögmannsstofa

Starfsmaður í bókhald og almenn skrifstofustörf

Fortis lögmannsstofa óskar eftir að ráða til sín starfsmann á skrifstofu fyrirtækisins. Í boði eru fjölbreytt verkefni á góðum vinnustað. Viðkomandi þarf að búa yfir ríkri þjónustulund og góðum samskiptahæfileikum. Ráðið er í starfið frá 1. september 2025, um er að ræða fullt starf.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Færsla bókhalds
  • Innheimta, uppgjör og afstemmingar
  • Samskipti við hagaðila og viðskiptavini
  • Gagnaöflun, utanumhald og úrvinnsla gagna
  • Aðstoð við lögmenn
  • Önnur tilfallandi skrifstofustörf

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Haldgóð þekking og reynsla af bókhaldi
  • Þjónustulund ásamt góðri samskipta- og samstarfshæfni
  • Frumkvæði, metnaður og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð þekking á bókhaldskerfi DK er æskileg
  • Gott vald á íslensku og ensku

Um Fortis lögmannsstofu:

Lögmenn Fortis hafa sérhæft sig í að veita einstaklingum ráðgjöf og þjónustu í slysa- og skaðabótamálum. Lögmenn Fortis sinna einnig margs konar lögmannsþjónustu fyrir fyrirtæki, félagasamtök og opinbera aðila, svo sem á sviði félaga-, stjórnsýslu- og vinnuréttar.

Nánari upplýsingar um Fortis má sjá á heimasíðu þeirra: www.fortislogmenn.is og www.fortis.is

Umsóknarfrestur er til og með 2. júní 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veita Þuríður Pétursdóttir ([email protected]) og Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) í síma 511-1225.

Auglýsing birt16. maí 2025
Umsóknarfrestur2. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Laugavegur 7, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar