Tæki.is
Tæki.is

Starfsmaður á þvottaplani – fjölbreytt og líflegt starf

Við leitum að duglegum og samviskusömum starfsmanni til starfa á þvottaplani. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem áhersla er lögð á þrif, móttöku og undirbúning vinnuvéla og búnaðar ásamt aðstoð við dagleg verkefni á plani.

Starfið hentar einstaklingi sem hefur gaman af verklegum störfum, er skipulagður og nýtur þess að vinna í lifandi starfsumhverfi þar sem engir tveir dagar eru eins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Taka á móti vélum og búnaði sem skilað er úr leigu
  • Þrífa vélar, tæki og annan búnað
  • Undirbúa vélar og búnað fyrir næstu útleigu
  • Aðstoða við skipulag og umsjón með plani
  • Færa vélar og búnað til eftir þörfum
  • Fylgjast með ástandi tækja og tilkynna um bilanir eða viðhaldsþörf
  • Aðstoða samstarfsfólk við tilfallandi verkefni tengd daglegum rekstri
  • Stuðla að snyrtilegu, öruggu og skipulögðu vinnuumhverfi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Dugnaður, stundvísi og jákvætt viðmót
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og góð skipulagshæfni
  • Áhugi á vélum og tækjum er kostur
  • Góð þjónustulund og samskiptahæfni
  • Almenn ökuréttindi eru skilyrði
  • Vinnuvélapróf er kostur
  • Íslensku- eða enskukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Niðurgreiddur heitur matur í hádeginu
  • Fjölbreytt og líflegt starfsumhverfi
  • Góð aðstaða og vinnuaðbúnaður
  • Tækifæri til að læra á fjölbreyttar vinnuvélar og búnað
  • Góð starfsreynsla sem nýtist til framtíðar
  • Möguleiki á áframhaldandi starfi fyrir réttan aðila
Vinnutími

Alla virka daga frá 8 til 16

Auglýsing birt8. júní 2026
Umsóknarfrestur16. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Norðurhella 5, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar