Distica
Distica
Distica

Starf á lyfjakælilager

Distica óskar eftir að ráða starfsmann í vöruafgreiðslu á kælilager fyrirtækisins. Um er að ræða spennandi tækifæri til að starfa hjá traustu fyrirtæki sem sérhæfir sig í innflutningi og dreifingu á vörum fyrir heilbrigðismarkað.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Samantekt og pökkun á kælilyfjum
  • Tiltekt og almennt utanumhald á kælilager
  • Sjá til þess að pantanir séu tilbúnar á tilsettum tíma
  • Vinna í nánu samstarfi við teymisstjóra og afgreiðslustjóra
  • Tryggja sem bestu nýtingu kælis
  • Þátttaka í umbótastarfi vinnusvæðisins og deildarinnar
  • Önnur tilfallandi störf innan vinnusvæðisins og vöruhúsanna

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Stúdentspróf eða góð viðeigandi starfsreynsla
  • Góð skipulagshæfni og ábyrgð í starfi
  • Geta til að vinna vel undir álagi
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi
  • Góð tölvukunnátta / tölvulæsi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Reglusemi / hreint skavottorð
  • Reynsla af starfi í vöruhúsi og lyftarapróf er kostur

Vinnutími: 07:00–15:00

Umsóknarfrestur er til og með 7. september 20235

Stefna Distica er að stuðla að jafnrétti og fjölbreytileika meðal starfsfólks og hvetjum við einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um. Tekið er við umsóknum hér, í gegnum ráðningarvef Distica.

Nánari upplýsingar veitir Ómar Smári Skúlason, teymisstjóri. í [email protected]

Auglýsing birt28. ágúst 2025
Umsóknarfrestur7. september 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hörgatún 2, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar