Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja

Standsetning nýrra og notaðra bíla

Við leitum að öflugum aðila í að sinna standsetningu nýrra og notaðra bíla. Um er að ræða 100% starf þar sem þar sem boðið er einstakt tækifæri til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni í lifandi umhverfi.

Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-Benz, Kia, Honda og smart. Hjá Öskju starfar vel þjálfaður og öflugur hópur starfsfólks, en virk þjálfun og endurmenntun starfsfólks er í samræmi við gæðastaðla birgja. Askja er dótturfélag Inchcape á Íslandi sem er hluti af alþjóðlega fyrirtækinu Inchcape Plc sem sérhæfir sig í sölu og dreifingu á bifreiðum og er skráð í kauphöllina í London. Inchcape er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði, starfar á 38 mörkuðum með yfir 16.000 starfsmenn og vinnur með stærstu bílaframleiðendum heims.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Standsetning og þrif nýrra bíla
  • Þrif á notuðum bílum, reynsluakstursbílum og sýningarbílum í sal
  • Ferjun á bílum frá skipafélagi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Samstarfs- og samskiptahæfni
  • Íslensku- eða enskukunnátta
  • Vandvirkni, metnaður og dugnaður
  • Heiðarleiki og stundvísi
  • Gilt bílpróf
  • Aldurstakmark 20 ár
Af hverju að vinna með okkur?
  • Vertu hluti af hratt vaxandi, alþjóðlegu fyrirtæki með þekkt bílamerki
  • Starfaðu með stuðningsríku og samvinnuþýðu teymi sem leggur áherslu á nýsköpun, fjölbreytileika og faglegt vinnuumhverfi
  • Tækifæri til að þróa feril þinn innan alþjóðlegs fyrirtækis
Auglýsing birt3. nóvember 2025
Umsóknarfrestur13. nóvember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Krókháls 11, 113 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Vandvirkni
Starfsgreinar
Starfsmerkingar