
Kozmoz ehf.
Kozmoz ehf. er ungt og framsækið hugbúnaðarfyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun snjallra lausna fyrir iðnaðarmenn og verktaka.
Í vörulínu okkar eru meðal annars App og vefsíða sem einfaldar iðnaðarmönnum og verktökum utanumhald verkefna, tímaskráningar, útgáfu reikninga og margt fleira.
Markmið okkar er að verða leiðandi fyrirtæki á sviði snjallra hugbúnaðarlausna fyrir iðnaðarmenn og verktaka.
Árið 2023 hlaut fyrirtækið styrk frá Tækniþróunarsjóði til vöruþróunar. Sama ár styrkti Frumkvöðlasjóður Íslandsbanka fyrirtækið einnig til vöruþróunar.

Sölustjóri óskast
Við leitum að drífandi og metnaðarfullum einstaklingi sem hefur áhuga á að taka þátt í að byggja upp ört stækkandi samfélag Kozmoz notenda.
Um er að ræða hlutastarf sem hentar vel með annarri vinnu og gefur þér tækifæri til að hafa bein áhrif á stefnumótun og vöruþróun fyrirtækisins.
Helstu verkefni felast í að kynna Kozmoz appið fyrir iðnaðarmönnum og verktökum ásamt því að aðstoða nýja notendur við að taka sín fyrstu skref.
Við leitum að einstaklingi sem:
- Starfar sem iðnaðarmaður eða verktaki
- Býr yfir sterkri samskiptahæfni og frumkvæði
- Hefur áhuga og metnað til að tileinka sér nýja tækni í iðnaði
Ef þú starfar nú þegar sem iðnaðarmaður eða verktaki, gæti þetta verið fullkomið tækifæri fyrir þig til að auka tekjur samhliða þínum daglegu störfum.
Auglýsing birt19. mars 2026
Umsóknarfrestur30. apríl 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sölustarf í Gömlu Bókabúðinni.
Verslunin Bræðurnir Eyjólfsson ehf.

Sölumaður hótel og veitingadeildar
Ölgerðin

Sumarstarf sölufulltrúi
NormX

Sales & Marketing Manager – Kombucha Iceland
Kúbalúbra ehf.

Sölustarf í persónu (Face to face) - Sumarstarf - Akureyri
Takk ehf

Sumarstarf á Hvolsvelli // Summerjob in Lava Centre Hvölsvollur
LAVA Centre

Viðskiptastjóri á sviði viðskiptavina
Eik fasteignafélag hf.

Söluráðgjafi í verslun S. Guðjónssonar
S. Guðjónsson

Sölustjóri hjá Noona Iceland
Noona Iceland

Spennandi starf í Skaðatryggingum hjá Verði
Vörður tryggingar

Brennur þú fyrir sölu?
Dineout ehf.

Icewear Akureyri Sumarstörf - Sölufulltrúar
ICEWEAR