
Noona Iceland
Noona Iceland er dótturfélag Símans sem sérhæfir sig í sölu og þjónustu á bókunar- og afgreiðslukerfum fyrir íslenskan markað. Helstu vörur Noona Iceland eru Noona bókunar- og afgreiðslukerfið og SalesCloud afgreiðslukerfið, sem eru notuð af fjölbreyttum hópi þjónustufyrirtækja um allt land. Viðskiptavinir eru nú á annað þúsund og fer þeim hratt fjölgandi. Félagið er í vexti og leggur áherslu á fagmennsku, framúrskarandi þjónustu og stöðuga þróun lausna sem einfalda rekstur viðskiptavina.

Sölustjóri hjá Noona Iceland
Noona Iceland leitar að öflugum og árangursdrifnum sölustjóra sem hefur brennandi áhuga á sölu og metnað til að ná framúrskarandi árangri.
Við leitum að einstaklingi sem er árangursdrifinn, hefur auga fyrir tækifærum og sækir stöðugt í að ná og fara fram úr markmiðum. Þetta er lykilhlutverk fyrir einstakling sem vill hafa raunveruleg áhrif á vöxt, tekjur og árangur fyrirtækisins.
Ef þú hugsar í lausnum, elskar áskoranir og hefur metnað til að ná árangri í sölu, þá gæti þetta starf hentað þér.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala á lausnum Noona til núverandi og nýrra viðskiptavina
- Greina þarfir viðskiptavina og veita ráðgjöf um lausnir
- Uppbygging og þróun á sölupípu (pipeline)
- Öflun nýrra viðskiptavina, m.a. með beinum samskiptum og köldum símtölum
- Fundir, kynningar og samningagerð
- Náið samstarf við vörustjóra og viðskiptastjóra
- Byggja upp traust viðskiptasambönd við lykilviðskiptavini
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
- Reynsla af sölu og/eða viðskiptastýringu á fyrirtækjamarkaði er kostur
- Tæknileg innsýn og skilningur á hugbúnaðarlausnum (Saas) er æskileg
- Reynsla af færsluhirðingu er kostur
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Skipulagshæfni og geta til að vinna markvisst að settum markmiðum
- Þjónustulund, lausnamiðuð hugsun og framúrskarandi samskiptahæfni
- Drifkraftur, fagleg vinnubrögð og jákvætt viðmót
Fríðindi í starfi
- Árlegur líkamsræktarstyrkur
- Aðgengi að velferðarþjónustu Heilsuverndar
- Rafmagnsbílastæði, hjólageymslur og búningsaðstaða
- Gleraugnastyrkur
- Afslættir af vörum og þjónustu Símans
- Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu
- Námsstyrkir
Auglýsing birt18. mars 2026
Umsóknarfrestur25. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Ármúli 25, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Almenn tæknikunnáttaDrifkrafturFagmennskaFljót/ur að læraFrumkvæðiSjálfstæð vinnubrögðSölumennskaÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Söluráðgjafi í verslun S. Guðjónssonar
S. Guðjónsson

Spennandi starf í Skaðatryggingum hjá Verði
Vörður tryggingar

Brennur þú fyrir sölu?
Dineout ehf.

Icewear Akureyri Sumarstörf - Sölufulltrúar
ICEWEAR

Hefur þú áhuga á fluguveiði?
Veiðiflugur

Sumarstörf Icewear - Goðafossi
ICEWEAR

Sölufulltrúi á fyrirtækjasviði
Heimilistæki ehf

Sölufulltrúi í timbur- og lagnadeild BYKO Granda
Byko

Afgreiðsla í verslun og samfélagsmiðlar.
Allt í köku ehf.

Ískraft : Söluráðgjafi á rafmagnsvörum
Ískraft

Sölustjóri þjálfunar og tæknilausna
Total Tempo ehf.

Söluráðgjafi
Egill Árnason ehf