
Heimilistæki / Tölvulistinn
Heimilistæki og Tölvulistinn eru keðja heimilistækja- og tölvuverslana sem reknar eru í sameiningu á landsbyggðinni.
Verslanir Heimilistækja og Tölvulistans á landsbyggðinni eru á Akureyri, Egilsstöðum, Selfossi og Reykjanesbæ.
Verslanirnar eru hluti af Heimilistækja fjölskyldunni sem á og rekur fjölbreyttar verslanir um land allt. Verslanir samstæðunnar eru Heimilistæki, Tölvulistinn, Rafland, Byggt og búið, Kúnígúnd og Iittala búðin en auk þess rekur fyrirtækið Raftækjalagerinn og verkstæði. Hjá samstæðunni starfa tæplega 200 starfsmenn í fjölbreyttum störfum þar sem lögð er áhersla á jákvætt starfsumhverfi og vinalegan starfsanda.

Sölufulltrúi Reykjanesbæ - Fullt starf
Verslun Tölvulistans og Heimilistækja í Keflavík leitar að áhugasömum og þjónustulunduðum sölufulltrúa í fullt starf í verslun okkar. Tölvulistinn/Heimilistæki eru þjónustuaðilar Símans á Reykjanesi og því felst einnig í starfinu þjónusta við viðskiptavini Símans.
Við bjóðum upp á framtíðarstarf í öflugu og jákvæðu starfsumhverfi, þar sem ráðgefandi sala og framúrskarandi þjónusta eru í forgrunni.
📅 Vinnutími
- Virka daga kl. 10–18
- Annan hvern laugardag 11-16 (ekki yfir sumartímann)
Viðkomandi þarf að geta hafið störf í apríl/maí.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala og þjónusta við viðskiptavini með áherslu á faglega ráðgjöf
- Áfyllingar, framstillingar og móttaka á vörum
- Afgreiðsla og afhending pantana
- Þrif og almenn verslunarstörf
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af sölu- og þjónustörfum mikill kostur.
- Þekking og áhugi á tölvum, raf- og heimilistækjum
- Áhugi á heimilis-, eldhús- og gjafavörum.
- Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfni
- Heiðarleiki, stundvísi og metnaður
- Góð kunnátta í íslensku og ensku
Auglýsing birt5. mars 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hafnargata 90, 230 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
AfgreiðslaHeiðarleikiMetnaðurReyklausSölumennskaStundvísiTóbakslausVeiplausÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Söluráðgjafar í hlutastarfi óskast í verslanir Rammagerðarinnar.
Rammagerðin

Starfsmaður í netpantanir og heildsöluafgreiðslu
Beautybox

Sölumaður - pottar og saunur
Trefjar ehf

Sölufulltrúi/Starfsmaður fyrir heildverslun/verslun fullt starf
Gullskógar

Sérfræðingur í smásölu/verslun (Retail Specialist) – Áfangastaðir
Arctic Adventures

Product Manager
Arctic Adventures

Kvöldvinna við afgreiðslu og þrif.
RVK MMA ehf.

Helgar- og hlutastarf í verslun
BAUHAUS slhf.

Sölufulltrúi í verslun - Sumarstarf
Smiðjan Fönix ehf.

Söluráðgjafi í stóma- og þvagleggjaþjónustu
Eirberg - Stuðlaberg heilbrigðistækni

N1 Akranesi hlutastarf
N1

Starfsmaður í verslun óskast
AB Varahlutir