Nova
Nova
Nova

Sölu- og þjónusturáðgjafi hjá Nova

Ert þú sölusnillingur með ríka þjónustulund? Við leitum að hressum og söludrifnum liðsfélögum í verslanir og þjónustuver Nova. Ef þú elskar sölu, tækni og góða stemningu – og vilt dansa með okkur – þá viljum við heyra frá þér!

Við leitum að hressum og söludrifnum liðsfélögum í verslanir og þjónustuver Nova.

Sölu- og þjónusturáðgjafar eru andlit Nova – hvort sem viðskiptavinir kíkja í verslun, hringja eða senda línu á netspjallinu taka þeir á móti þeim með bros á vör, veita framúrskarandi ráðgjöf um síma, tæki og þjónustuleiðir og sjá til þess að öll samskipti séu skemmtileg upplifun í anda Nova.

Lífsgleði, metnaður og keppnisskap eru eiginleikar sem skipta höfuðmáli – og auðvitað brennandi áhugi á tækni og fjarskiptum.

Engin sérstök reynsla nauðsynleg ef viðhorfið er rétt: við þjálfum þig í öllu hinu!

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ráðgjöf og sala á vörum og þjónustu Nova
  • Móttaka viðskiptavina í verslun og svörun fyrirspurna í síma, netspjalli og tölvupósti
  • Framúrskarandi þjónusta og upplifun í anda Nova
  • Þátttaka í sölumarkmiðum og keppnisanda teymisins
  • Ásýnd og uppstillingar í verslun og önnur dagleg verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
    • Rík þjónustulund og framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
    • Keppnisskap, metnaður, jákvætt hugarfar og lífsgleði
    • Áhugi á tækni, tækjum og fjarskiptum
    • Reynsla af sölu- eða þjónustustörfum er kostur
    • Gott vald á íslensku og ensku
Auglýsing birt15. júlí 2026
Umsóknarfrestur6. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Lágmúli 9, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Sölumennska
Starfsgreinar
Starfsmerkingar