
Laugarás Lagoon
Laugarás Lagoon er nýr baðstaður í hjarta Suðurlands, við hina glæsilegu brú sem liggur yfir Hvítá við byggðina í Laugarási. Baðstaðurinn er hannaður þannig að hann fellur á fullkominn hátt inn í landslagið og veitir gestum einstaka upplifun með baðlóni á tveimur hæðum. Á útisvæði eru tvær sánur, útisturtur, kaldur pottur og heitur pottur í skógarrjóðri, sem býður upp á einstaka upplifun kyrrðar og náttúru.
Mikilvægur þáttur í töfrum Laugarás Lagoon er veitingastaðurinn Ylja þar sem matreiðslumaðurinn Gísli Matthías Auðunsson fer fyrir. Ylja býður upp á fjölbreyttan, heilnæman mat úr afurðum frá bændum í nágrenni staðarins, þá ekki síst hið ljúffenga grænmeti sem svæðið er þekkt fyrir.
Laugarás Lagoon is a new bathing destination in the heart of South Iceland, located by the magnificent bridge that spans the Hvítá River near the settlement of Laugarás. The lagoon is designed to blend seamlessly with the surrounding landscape, offering guests a unique experience with a two-level bathing area and an exceptional outdoor space.
An important part of the charm of Laugarás Lagoon is the Ylja restaurant, led by chef Gísli Matthías Auðunsson. Ylja offers a diverse and wholesome menu featuring local produce from nearby farms, with particular emphasis on the delicious vegetables for which the region is renowned.

Sölu- og bókanafulltrúi / Sales and booking representative
(English below)
Við leitum að sölu- og bókunarfulltrúa til að styðja við uppbyggingu og söluferla í baðlóninu Laugarás Lagoon, sem opnaði nýverið.
Starfið felur í sér móttöku bókana og fyrirspurna frá gestum, samstarfsaðilum og ferðaskrifstofum. Einnig felur það í sér umsjón með bókunum, skráningum og söluflæði, með það að markmiði að tryggja að upplifun gesta hefjist með hlýju og fagmennsku strax í fyrstu samskiptum. Starfið er unnið í vaktavinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka bókana og fyrirspurna í gegnum síma, netpóst og bókunarkerfi
- Umsjón með sölukerfum og daglegri bókunarvinnu
- Kynning og sala á þjónustu og/eða vörum fyrirtækisins
- Byggja upp og viðhalda góðum tengslum við viðskiptavini og samstarfsaðila
- Samskipti við innlenda og erlenda viðskiptavini
- Þátttaka í kynningarstarfi og viðburðum eftir þörfum
- Vinna þvert á teymi og deildir til að tryggja góða upplifun viðskiptavina
- Almenn skrifstofustörf tengd sölu og bókun
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af sölu- og/eða bókunarstörfum er kostur
- Mjög góð tölvukunnátta (t.d. bókunarkerfi, CRM, Office-pakki)
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti (önnur tungumál kostur)
- Góð samskiptahæfni og þjónustulund
- Skipulagshæfni og nákvæm vinnubrögð
- Jákvæðni, drifkraftur og sveigjanleiki í starfi
Við leitum að einstaklingi sem:
- Hefur áhuga á þjónustu og samskiptum
- Nýtur þess að vinna bæði sjálfstætt og í teymi
- Er lausnamiðaður og getur unnið undir álagi
- Vill taka þátt í að efla upplifun viðskiptavina
- Sveigjanlegt vikulega vinnutímaálag, með stundum helgarvinnu
- er með bílpróf
Fríðindi í starfi
Við bjóðum:
- Tækifæri til að taka þátt í að skapa glænýjan vinnustað í einstöku umhverfi á Suðurlandi
- Sveigjanlegan vinnutíma (mögulega kvöld/vaktavinna)
- Tækifæri til starfsþróunar
- Líflegt starfsumhverfi innan ferðaþjónustunnar
- Aðgang að þjónustu fyrirtækisins
Auglýsing birt20. október 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Skálholtsvegi 1, Laugarási
Dugguvogi 42, Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Almenn tæknikunnáttaSamskipti í símaSamskipti með tölvupóstiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSölumennskaStundvísiÞjónustulund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Sala & Vöruþróun í Norðurlöndunum
Luxury Adventures

Golfskálinn leitar að öflugum verslunarstjóra
Golfskálinn

Sölufulltrúar í Sportvörur
RJR ehf

Verslunarstjóri Name It - Barnafataverslun
BESTSELLER

Framsækinn sérfræðingur í viðskiptum og þjónustu
Eik fasteignafélag hf.

Þjónustufulltrúi / Service Agent
Campeasy

Sölufulltrúi í heildverslun - hlutastarf.
Heildverslun á höfuðborgarsvæðinu

Customer Service Manager / Þjónustustjóri
Alvotech hf

Kjötkompaní - verslunarstarf
Kjötkompaní ehf.

Sölufulltrúi í Byggt og búið
Byggt og búið

A4 Hafnarfjörður - 50% starf
A4

Einstaklingsráðgjafi
TM