
Traustafl ehf.
Húsasmíðameistari sem sér um alla almenna nýsmíði og viðhald tengt fasteignum.

Smiður óskast til starfa
Traustafl ehf óskar eftir að ráða smiði til starfa í viðhaldsverkefni og nýsmíði.
Starfið hentar laghentum einstakling sem hefur gaman af því að leysa verkefni og klára þau með vönduðum og úthugsuðum hætti. Verkefnin eru mikið á opinberum stöðum þar sem full starfsemi er í gangi og þarf því hreinlæti og þrifnaður að vera í fyrirrúmi og oft má hvorki skilja eftir efni né verkfæri eftirlitslaus. Flest verkefnin þurfa að þola mikinn ágang fólks og mega ekki skapa slysahættu af neinu tagi og því er það lykilatriði að verja frekar meiri vinnu í að skila af sér vönduðu verki þó það taki lengri tíma.
Starfshlutfallið miðast við 100% vinnu
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn húsasmiði og viðhald fasteigna.
- Ísetning á gluggum og hurðum.
- Lekaviðgerðir tengdar gluggum, hurðum og þökum.
- Fjölmörg sérverkefni sem þarf laghentan einstakling í sem getur starfað sjálfstætt.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af smíðavinnu
- Sveinspróf æskilegt
- Vinnuvélapróf mikill kostur
- Ökuréttindi
- Íslenskukunnátta
- Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
- Farsímaáskrift
- Möguleiki á vinnubíl til umráða
- Vinnuföt
- Vinnutengt félagsstarf
Auglýsing birt1. september 2025
Umsóknarfrestur14. september 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Starfstegund
Hæfni
HandlagniSmíðar
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Aðstoðarmaður / Sendill
Stólpi trésmiðja

Smiðir
Stólpi trésmiðja

Starf í áhaldahúsi Rangárþings ytra
Rangárþing ytra

Tækjamaður í garðyrkju - Þjónustumiðstöð
Hafnarfjarðarbær

Smiðir til starfa
B.Ó.Smiðir ehf

Framtíðarstarf
M.Brothers ehf.

Akureyri, leitað að Smið/Verkamanni með reynslu í byggingariðnaði Á norðurlandi
Tóm Tjara

Lagerstarf
Kvarnir ehf

Við erum að leita að kraftmiklum verkstjóra!
Atlas Verktakar ehf

Gólflagningar - Akureyri
Gólflagningar

Steypusögun - Concrete cutting
Ísbor ehf

Verkamaður á Selfossi/Worker in Selfoss
Borgarverk ehf