
Grindavíkurbær
Grindavík er vinalegur 3600 manna sjávarútvegsbær á suðvesturhorni landsins. Í bænum eru leik-, grunn- og tónlistarskólar ásamt öflugu íþrótta- og tómstundastarfi. Sjávarútvegur og fiskvinnsla hefur verið burðarás atvinnulífs í Grindavík og er bærinn ein öflugasta verstöð landsins. Í Grindavík er einnig öflug ferðaþjónusta, mörg veitingahús, gistihús, hótel og fjögurra stjörnu tjaldsvæði, góð útisundlaug með heitum pottum, heilsuræktarmiðstöð, verslanir, banki og öll nauðsynleg þjónusta.
Slökkviliðsstjóri
Grindavíkurbær leitar að metnaðarfullum einstaklingi í framtíðarstöðu slökkviliðsstjóra Grindavíkurbæjar. Slökkviliðsstjóri ber ábyrgð á rekstri og starfsemi slökkviliðs Grindavíkurbæjar og að unnið sé í samræmi við gildandi lög og reglugerðir. Mikil áhersla er lögð á áreiðanlega þjónustu við bæjarbúa og fagleg vinnubrögð.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Yfirumsjón og ábyrgð á rekstri og stjórnun slökkviliðs
- Ábyrgð á faglegri starfsemi, menntun og þjálfun slökkviliðsmanna
- Stjórn slökkvistarfs við eldsvoða og á vettvangi mengunaróhappa á landi
- Eldvarnareftirlit, skipulag, úttektir, umsagnir og eftirfylgni
- Umsjón með öllum tækjum slökkviliðs og ábyrgð á virkni þeirra
- Áætlanagerð og stefnumótun
- Samskipti við íbúa, fyrirtæki og aðra hagsmunaaðila
- Situr í almannavarnanefnd
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Löggilding sem slökkviliðsmaður sbr. 17. gr. laga nr. 75/2000 og að lágmarki eins árs reynsla í slökkviliði sem löggiltur slökkviliðsmaður
- Menntun sem nýtist í starfi
- Menntun til eldvarnareftirlits er kostur
- Stjórnunarreynsla og þekking á rekstri
- Þekking á yfirferð og eftirliti tækja og búnaðar æskileg
- Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi
- Geta til að vinna undir miklu álagi
- Leiðtogafærni, þjónustulund og góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Áhugi og vilji til þess að tileinka sér nýjungar í starfi
- Góð almenn tölvukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
- Vegna eðli starfs og viðbragðs utan dagvinnutíma er æskilegt að viðkomandi sé búsettur í Grindavík eða innan 15 mínútna akstursfjarlægðar
Auglýsing birt17. september 2021
Umsóknarfrestur4. október 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Víkurbraut 62, 240 Grindavík
Starfstegund
Hæfni
Almannatengsl (PR)ÁætlanagerðFrumkvæðiLeiðtogahæfniMetnaðurSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðStefnumótunVinna undir álagiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Deildarstjóri frístundastarfs
Frístundaklúbburinn Úlfurinn

Rekstrarstjóri
Aurora Igloo

Framkvæmdastjóri
Hundaræktarfélag Íslands (HRFÍ)

Rekstrarstjóri ævintýraferða á Adventure Ground og í Skaftafelli
Icelandia

Við leitum að metnaðarfullum hótelstjóra
Arnarstapicenter

Framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs
Veðurstofan

Viðskiptastjóri einstaklinga á Selfossi
Íslandsbanki

Forstöðumaður
Vélanaust

Deildarstjóri Sölu- og þjónustulausna
HD ehf. Iðn- og tækniþjónusta

Forstöðumaður í Hlaðgerðarkoti
Samhjálp

Yfirmaður í eldhúsi leikskólanna í Hveragerðisbæ
Hveragerðisbær

Rekstrarstjóri dagsferða
Icelandia