

Rekstrarstjóri
Við leitum að öflugum og skipulögðum rekstrarstjóra til að hafa umsjón með daglegum rekstri Aurora Igloo. Starfið er fjölbreytt og felur meðal annars í sér umsjón með starfsfólki, þjónustu við gesti, gæðum, þrifum og viðhaldi ásamt öðrum verkefnum sem tengjast daglegum rekstri. Viðkomandi vinnur náið með eigendum fyrirtækisins og fær tækifæri til að taka virkan þátt í áframhaldandi uppbyggingu og þróun Aurora Igloo.
Umsjón með daglegum rekstri Aurora Igloo
Stjórnun og skipulag starfsfólks
Ábyrgð á þjónustu og upplifun gesta
Eftirfylgni með þrifum, viðhaldi og gæðum
Samskipti við gesti, birgja og samstarfsaðila
Vaktaskipulag og mönnun
Þátttaka í þróun og umbótum á rekstri fyrirtækisins
Reynsla úr ferðaþjónustu eða öðrum þjónusturekstri er kostur
Viðeigandi háskólamenntun er kostur
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
Góð skipulags- og samskiptafærni
Sjálfstæð, lausnamiðuð og ábyrg vinnubrögð
Góð almenn tölvukunnátta
Fjölbreytt og sjálfstætt starf í vaxandi fyrirtæki
Sveigjanleiki í starfi
Góð vinnuaðstaða og jákvætt starfsumhverfi
Tækifæri til að hafa áhrif á þróun og uppbyggingu fyrirtækisins
Íslenska
Enska






