

Skrifstofustjóri í Vatnsendaskóla
Vatnsendaskóli óskar eftir skrifstofustjóra í 80% -100% starf
Við leitum að þjónustulunduðum og skipulögðum einstaklingi sem hefur áhuga á að taka þátt í lifandi skólastarfi og styðja við daglegan rekstur skólans.
Í Vatnsendaskóla eru um 515 nemendur og 90 starfsmenn. Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf og unnið er eftir uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Vatnsendaskóli er Réttindaskóli Unicef. Einkunnarorð skólans eru virðing, vinátta, samvinna og skapandi starf.
Starfið hentar vel einstaklingi sem þrífst í hröðu og lifandi starfsumhverfi.
Ráðningartími og starfshlutafall
Um er að ræða 80% - 100% starf og er ráðið í stöðuna frá 1. október 2026.
Vinnutími hefst kl. 7:30 á morgnana.
Upplýsingar um skólastarfið í Vatnsendaskóla, stefnu hans og helstu áherslur er að finna á heimasíðu skólans, www.vatnsendaskoli.is.
- Umsjón og ábyrgð á daglegum rekstri skrifstofu.
- Móttaka og þjónusta við nemendur, foreldra, starfsfólk og gesti skólans.
- Símsvörun og miðlun skilaboða til viðeigandi aðila innan og utan bæjarins.
- Umsýsla, skjölun og frágangur gagna s.s. nemenda- og starfsmannagögn.
-
Skipulag og stjórnun skjalavörslu.
-
Aðstoð við uppáskrift reikninga í samráði við skólastjóra.
-
Umsjón með One Systems og Mentor vegna skráningar nemenda í skólann.
- Umsjón með viðveruskráningu starfsmanna í Vinnustund.
-
Umsjón með skráningu nemenda og starfsfólks, forfallaskráningu og skipulagi forfallakennslu.
- Innkaup og birgðahald fyrir skrifstofu og skólahald.
- Stuðla að velferð nemenda og góðum samskiptum við forsjáraðila í samstarfi við fagfólk skólans.
- Önnur tilfallandi verkefni í samstarfi við skólastjórnendur.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Mjög góð þekking og reynsla af skrifstofustörfum, helst innan skóla- eða opinberrar stjórnsýslu.
- Góð tölvukunnátta og færni í ritvinnslu og almennri skrifstofuvinnu.
- Þekking á upplýsingakerfum eins og Mentor er kostur.
- Þekking og reynsla á Vinnustund er kostur.
-
Lipurð í samskiptum og samstarfshæfni, þjónustulund og fagleg framkoma.
-
Sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi.
- Góð skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Stundvísi og áreiðanleiki.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli.
Starfsmenn Kópavogsbæjar fá frían aðgang í sundlaugar bæjarins.
Íslenska
Enska
