NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

Skipulögð og áreiðanleg aðstoðarkona óskast á dagvaktir

Ég er 56 ára gömul kona búsett í Breiðholti að leita mér að persónulegum aðstoðarkonum á dagvaktir og afleysingar. Starfið felst í að aðstoða mig við öll þau verkefni sem ég tek mér fyrir hendur, en ég þarf aðstoð við allar athafnir daglegs lífs (klæða mig, koma mér milli staða, eldhússtörf o.s.frv.). Í frítíma mínum hef ég gaman að bakstri, útivist, fara í leikhús, göngutúra og ferðast.

Dagvaktir eru frá 9-17 alla daga vikunnar.

Ég er með mikið kattarofnæmi þannig umsækjandi má ekki eiga kött eða vera í kringum ketti.

Aðstoðarkonur mínar þurfa vera íslenskumælandi, vera áreiðanlegar, umhyggjusamar, skipulagðar og heilsuhraustar. Konur á aldrinum 30 ára og eldri, með reynslu af umönnunarstörfum sem eru tilbúnar til að vinna við persónulega aðstoð eru hvattar til að sækja um. Reynsla af sambærilegum störfum er kostur en ekki skilyrði.

Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf, en hægt er að lesa nánar um hugmyndafræðina og notendastýrða persónulega aðstoð á NPA miðstöðin - NPA miðstöðin
Laun eru samkvæmt kjarasamningi NPA miðstöðvarinnar og Eflingar.

Auglýsing birt20. nóvember 2025
Umsóknarfrestur5. desember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Urðarhvarf 8, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar