Sumarstörf - Kópavogsbær
Sumarstörf - Kópavogsbær
Sumarstörf - Kópavogsbær

Skapandi sumarstörf í Kópavogi - Leiðbeinandi

Molinn miðstöð unga fólksins
Skapandi Sumarstörf Molans - Leiðbeinandi

Í Molanum munu hópar og einstaklingar starfa við ýmis verkefni í sumar. Leiðbeina þarf sumarstarfsmönnum við að glæða bæinn lífi með margvíslegum uppákomum og vinna að kynningar og markaðsmálum. Auglýst er eftir leiðbeinanda til að fara fyrir hópi sumarstarfsfólks í Molanum. Starfstímabilið er 26. maí til 1. ágúst 2025.

Æskilegt að umsækjendur séu fæddir 2000 eða fyrr.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Eftirlit með vinnuframlagi, tíma- og verkáætlun starfsfólks Skapandi sumarstarfa.
  • Umsjón með hönnun á efni fyrir samfélagsmiðla og almennri kynningu á starfinu.
  • Ráðgjöf og aðstoð við skipulagningu verkefna í Skapandi sumarstörfum.
  • Samskipti við stofnanir og fyrirtæki í bænum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla á sviði lista, t.d. leiklist, tónlist eða myndlist.
  • Reynsla í markaðs- og kynningarmálum.
  • Þekking á tækjabúnaði tengdum listflutningi.
  • Góð tölvukunnátta. 
  • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
  • Góð samskiptihæfni og jákvæðni í starfi. 
Auglýsing birt6. febrúar 2025
Umsóknarfrestur10. mars 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hábraut 2, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar