Múlabær
Múlabær

Sjúkraþjálfari

Við viljum ráða inn öflugan sjúkraþjálfara í 40-90% starf

Múlabær er dagþjálfun fyrir eldra fólk. Markmið þjónustunnar er að bæta lífsgæði fólks.

Daglega koma um 70 einstaklingar í dagþjálfun í Múlabæ til að nýta sér fjölbreytta þjónustu í frábærri aðstöðu og hvetjandi félagsskap. Boðið er upp á hjúkrunarþjónustu, æfinga- og tækjasal, sjúkraþjálfun, listasmiðju, vinnustofu auk fjölbreytts félagsstarfs.

Í Múlabæ starfar samheldinn og öflugur hópur starfsfólks þar sem áhersla er lögð á teymisvinnu og jákvæðan starfsanda. Starfið er í stöðugri þróun. Í Múlabær er starfandi 1 sjúkraþjálfari og viljum við bæta við þjónustuna. Ert þú rétti aðilinn?

Múlabær er opinn alla virka daga frá kl 8-16. Vinnutími er samkvæmt samkomulagi.

Launakjör eru skv. kjarasamningi Félags sjúkraþjálfara við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu.

Heimasíða: www.mulabaer.is

Þú getur fylgst með Múlabæ á fésbókinni: https://www.facebook.com/profile.php?id=100057566435048

Ef þú hefur áhuga á að starfa með okkur þá endilega hafðu samband, [email protected]

Ráðningartími er frá 1.3. 2026 eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Einstaklingsmeðferðir
  • Uppsetning æfingaprógramma m.a. í HUR styrktartækjum
  • Færnimælingar 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sjúkraþjálfari með íslenskt starfsleyfi
  • Góðir samskiptahæfileikar
  • Reynsla af vinnu með eldra fólki er kostur
Fríðindi í starfi
  • Stytting vinnuvikunnar
  • Mötuneyti
  • Heilsustyrkur

 

Auglýsing birt19. febrúar 2026
Umsóknarfrestur27. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Síðumúli 32, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar