Tryggingastofnun
Tryggingastofnun

Sjúkraþjálfari á örorkusvið

Hefur þú brennandi áhuga á velferðar- og heilbrigðismálum? - þá ættir þú að kíkja á þessa auglýsingu því laust er til umsóknar starf sjúkraþjálfa hjá Tryggingastofnun (TR). Um er að ræða spennandi og krefjandi sérfræðistarf í matshópi um samþætt sérfræðimat. Starfið byggir á frumkvæði og þéttu samstarfi í breiðum þverfaglegum hópi sérfræðinga. Starfið felst í mati á umsóknum um örorkulífeyri og þátttöku í mótun og vinnu í nýju samþættu sérfræðimati sem er nýtt mat á örorku.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Mat, greining og úrvinnsla umsókna um örorkulífeyri
  • Þátttaka í matsteymi vegna umsóknar um örorku sem byggir á samþættu sérfræðimati  
  • Aðkoma að mati á réttindum til sjúkra- og endurhæfingargreiðslna
  • Þróun vinnuferla og rafrænnar þjónustu
  • Skráning og meðhöndlun tölfræðiupplýsinga
  • Önnur sérhæfð verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskst starfsleyfi sem sjúkraþjálfi
  • Starfseynsla annaðhvort af sviði heilbrigðis- eða velferðarþjónustu er nauðsynleg
  • Mjög góð hæfni í greiningu, túlkun og framsetningu gagna
  • Mjög góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót. 
  • Faglegur metnaður, lausnamiðuð hugsun og frumkvæði
  • Mjög gott vald á  íslensku og ensku
Auglýsing birt12. febrúar 2026
Umsóknarfrestur26. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hlíðasmári 11, 201 Kópavogur
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar