

Sjúkralið - komdu til liðs við okkur á Reykjalundi
Langar þig til að starfa í fjölbreyttu fagumhverfi þar sem þú færð tækifæri til að hafa áhrif á heilsu, færni og lífsgæði einstaklinga ?
Reykjalundur leitar að áhugasömum sjúkraliða í 80-100% starf á hjúkrunardeild.
Á Reykjalundi starfar öflugur hópur fagfólks sem vinnur saman að því að efla heilsu, færni og sjálfstæði einstaklinga í þverfaglegri endurhæfingu. Við leggjum áherslu á einstaklingsmiðaða þjónustu, heildræna nálgun og öflugt þverfaglegt samstarf. Á hjúkrunardeildinni eru 17 legurými.
Við bjóðum upp á:
- Fjölbreytt og gefandi starf í faglegu starfsumhverfi.
- Samstarf í öflugu þverfaglegu teymi.
- Áherslu á góðan starfsanda og jákvæð samskipti.
- Aðgang að heilsurækt, starfsmannaleikfimi og sundlaug á vinnustaðnum.
- Mötuneyti er á staðnum.
- Sveigjanleika í starfshlutfalli.
Við leitum að þér sem:
- Hefur gilt íslenskt starfsleyfi frá Embætti landlæknis.
- Hefur áhuga á þverfaglegri teymisvinnu og góðu samstarfi.
- Ert jákvæð/ur, lipur í samskiptum og sýnir öðrum virðingu.
- Sýnir frumkvæði, áhuga og metnað í starfi.
- Hefur áhuga á að taka þátt í að efla þjónustu og starfsemi deildarinnar.
Laun greiðast samkvæmt gildandi kjarasamningi Sjúkraliðafélags Íslands og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, auk gildandi stofnanasamnings Sjúkraliðafélags Íslands og SFV.
Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilsskrá ásamt afriti af prófskírteinum, starfsleyfi og sakavottorði.
Nánari upplýsingar um starfið veita:
Erna Bjargey Jóhannsdóttir, sviðsstjóri hjúkrunar - [email protected] og Guðbjörg Gunnarsdóttir mannauðsstjóri - [email protected]
Öllum umsóknum er svarað.
Upplýsingar um Reykjalund er að finna á www.reykjalundur.is
Íslenska
Enska



