Leikskólinn Álfheimar, Selfossi
Leikskólinn Álfheimar, Selfossi
Leikskólinn Álfheimar, Selfossi

Sérkennslustjóri hjá leikskólanum Álfheimum

Leikskólinn Álfheimar auglýsir eftir sérkennslustjóra frá og með 5. ágúst 2026.
Leitað er að áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingi sem er fær um að taka að sér umsjón með sérkennslu, stjórnunarlega ábyrgð og þátttöku í stjórnunarteymi.
Sérkennslustjóri starfar samkvæmt stefnumörkun leikskólans sem tekur miðal annar mið af
menntastefnu Sveitafélagsins Árborgar, aðaln´mskrá leikskóla, lögum og reglugerðum um leikskóla og öðrum lögum er við eiga.


Um er að ræða gefandi og skemmtilegt starf í góðu starfsumhverfi barna og kennara.
Áherslur Álfheima eru á leik barna, heilsueflingu, jákvæð og uppbyggjandi samskipti og
umhyggjusamt námsumhverfi. Einkunnarorð leikskólans er Virðing, hlýja og traust.


Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá
sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og
árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins
að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ber ábyrgð á og stjórnar skipulagningu, framkvæmd og endurmat sérkennslunnar í leikskólanum ásamt leikskólastjóra.  
  • Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, lögum um málefni fatlaðra, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og skólastefnu Árborgar.  
  • Faglegur umsjónarmaður sérkennslu í leikskólanum annast frumgreiningu og veitir ráðgjöf til annarra starfsmanna leikskólans.  
  • Hefur yfirumsjón með gerð verkefna og ber ábyrgð á gerð einstaklingsnámskráa fyrir börn sem njóta sérkennslu.  
  • Ber ágyrgð á að börnum sem njót sérkennslu í leikskólanum sé boðið upp á þroskavænleg verkefni.  
  • Veita foreldrum/forráðamönnum barna stuðning, fræðslu og ráðgjöf.  
  • Þátttaka í stefnumörkun skólans ásamt stjórnunarteymi og öðru samstarfsfólki. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf sem leikskólakennari.
  • Framhaldsmenntun í sérkennslufræðum og/eða reynsla af sérkennslu  
  • Jákvæðni, frumkvæði, áhugasemi og góður samstarfsvilji.
  • Sjáfstæð og skipulögð vinnubrögð.  
  • Góð færni í mannlegum samskiptum.  
  • Reynsla, áhugi og hæfni í starfi með börnum.  
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubörð  
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Færni til að tjá sig í ræðu og riti.  
Auglýsing birt21. apríl 2026
Umsóknarfrestur30. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Sólvellir 6, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar