

Leikskólakennari - Regnboginn leikskóli
Regnboginn óskar eftir að ráða leikskólakennara í 100% stöðu
Regnboginn er 3ja deilda, sjálfstætt starfandi leikskóli í Ártúnsholti, Reykjavík.
Leikskólinn vinnur í anda Reggio Emilia stefnunnar með áherslu á skapandi starf, tilfinningalega styðjandi umhverfi og læsi.
Einkunnarorð skólans eru "Börn eru merkilegt fólk" og gildin okkar eru gleði - virðing - umhyggja. Við viljum skapa barnvænt umhverfi, rækta tillitssemi, vináttu og kærleika.
Í Regnboganum starfar öflugur hópur starfsfólks sem er samheldinn, skemmtilegur og jákvæður. Rík áhersla er á að skapa jákvæða og uppbyggjandi vinnustaðamenningu.
Í síðustu starfsmannakönnun sögðu 100% starfsmanna að þeir myndu mæla með Regnboganum sem vinnustað!
Ef þú ert að leita að faglegum, metnaðarfullum og notalegum vinnustað með frábæru samstarfsfólki þá er Regnboginn rétti staðurinn fyrir þig.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Fanney Guðmundsdóttir skólastjóri á netfanginu [email protected]
Daglegur vinnutími er 7 klst og 15 mínútur
- Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra
- Vinna að uppeldi og menntun barna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara
- Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfi leikskólans og öðrum verkefnum undir stjórn skólastjóra.
- Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðafólk
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
- Ef ekki fæst leikskólakennari verður horft til háskólamenntunar sem nýtist í starfi með börnum.
- Mjög góð íslenskukunnátta
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Jákvæðni og frumkvæði í starfi
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Hreint sakavottorð
Íslenska










