Leikskólinn Álfheimar, Selfossi
Leikskólinn Álfheimar, Selfossi
Leikskólinn Álfheimar, Selfossi

Leikskólakennari hjá leikskólanum Álfheimum

LeLeikskólinn Álfheimar auglýsir eftir leikskólakennurum frá og með 5.ágúst 2026.


Leitað er að leikskólakennurum sem hafa áhuga á að starfa í leikskóla þar sem fram fer
faglegt leikskólastarf með áherslu er á leik, samvinnu, virðingu, hlýju, traust og gleði. Í
leikskólanum Álfheimum er virkt lærdómssamfélag og teymisvinna en ásamt því er
leikskólinn einnig grænfána leikskóli þar sem lögð er áhersla á útinám.


Leikskólakennari starfar samkvæmt stefnumörkun leikskólans sem tekur meðal annars
mið af menntastefnu Sveitarfélagsins Árborgar, aðalnámskrá leikskóla, lögum og
reglugerðum um leikskóla og öðrum lögum er við eiga. Um er að ræða gefandi og skemmtilegt starf í góðu starfsumhverfi barna og kennara.


Áherslur Álfheima eru á leik barna, heilsueflingu, jákvæð og uppbyggjandi samskipti og
umhyggjusamt námsumhverfi. Einkunnarorð leikskólans er Virðing, hlýja og traust.


Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá
sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og
árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins
að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna.
  • Að fylgist vel með velferð leikskólabarna og hlúa að þeim andlega og líkamlega í 
    samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar. 
  • Að taka þátt í teymisvinnu, foreldrasamstarfi og sinnir faglegum verkefnum sem 
    deildarstjóri felur honum. 
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra. 
  • Að taka þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og 
    þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra. 
  • Situr starfsmannafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi 
    leikskólans. 
  • Að efla og viðhalda fagþekkingu sinni með reglubundinni endur- og símenntun.  
  • Að sinna þeim verkefnum er varða uppeldi og menntun leikskólabarna sem 
    yfirmaður felur honum.
Menntunar- og hæfniskröfur

• Leyfisbréf leikskólakennara. 
• Reynsla í leikskólastarfi æskileg. 
• Færni í mannlegum samskiptum.   
• Reynsla, hæfni og áhugi í starfi með börnum.   
• Jákvæðni, frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð. 
• Færni til að tjá sig í ræðu og riti.   
• Góð íslenskukunnátta æskileg.  

Auglýsing birt21. apríl 2026
Umsóknarfrestur30. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Sólvellir 6, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar