Mennta- og barnamálaráðuneyti
Mennta- og barnamálaráðuneyti
Mennta- og barnamálaráðuneyti

Sérfræðingur í málefnum leik- og grunnskóla

Við vitum hvað þarf að gera til að bæta íslenskt menntakerfi. Við verðum að efla kjarnagreinar eins og lestur og stærðfræði og til eru stefnur og ótal hugmyndir um hvernig við getum gert það. En snúnara er að láta þessar hugmyndir verða að veruleika um land allt og til langrar framtíðar.

Við leitum að einstaklingi sem hefur siglt stórum breytingum farsællega í höfn og þekkir menntakerfið nógu vel til að vita hvar góðar hugmyndir hafa strandað. Þú þarft ekki að hafa starfað í ráðuneyti áður. Þú þarft ekki að vera kennari. En þú þarft að skilja skólastarf mjög vel og hafa sýnt að þú hafir alla burði til að vinna með fólki til að koma hlutum í verk.

Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings á skrifstofu skóla- og íþróttamála.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða innleiðingu umbótaverkefna á sviði leik- og grunnskóla allt frá stefnumarkandi ákvörðun ráðherra og alla leið inn í skólastofuna.
  • Vinna með stofnunum ráðuneytisins og hagaðilum að endurskoðun aðalnámskrár, þróun námsgagna, námsmats, starfsþróun kennara o.s.frv.
  • Skilgreina mælikvarða á árangur, greina gögn, meta hvort aðgerðir skili þeim árangri sem að var stefnt og leggja til breytingar þegar svo er ekki.
  • Undirbúa gagnadrifnar ákvarðanir svo sem með því að leiða spretti, skrifa minnisblöð, leggja grunn að kostnaðarmati, taka þátt í samráði og viðhafa markvissa eftirfylgni.
  • Byggja upp árangursríkt samstarf við sveitarfélög, skólastjórnendur, kennara, fagfélög og stofnanir.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Góð þekking á íslensku menntakerfi og starfsumhverfi leik- og/eða grunnskóla.
  • Reynsla af því að leiða verkefni eða breytingar alla leið til framkvæmdar hvort sem er innan skóla, sveitarfélags, stjórnsýslu, atvinnulífs eða félagasamtaka.
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.

Eftirfarandi telst til kosta

  • Reynsla af aðalnámskrá, námsgögnum eða námsmati.
  • Reynsla af starfsþróun kennara.
  • Reynsla af opinberri stjórnsýslu og stefnumótun.
  • Reynsla af greiningu og nýtingu gagna við ákvarðanatöku.
  • Reynsla af samstarfi við ólíka og ósammála hagsmunaaðila.
  • Þekking á einu Norðurlandamáli.

Við mat á umsóknum verður sérstaklega horft til þess hvað umsækjandi hefur raunverulega komið í framkvæmd og hvernig. Við biðjum þig því um að lýsa í kynningarbréfi með umsókninni a.m.k. einu verkefni sem þú hefur stýrt farsællega á leiðarenda.

Auglýsing birt21. október 2026
Umsóknarfrestur2. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar