Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS)
Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS)
Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS)

Sérfræðingur í fasteignamati og þróun matsaðferða

VILT ÞÚ STARFA Á VINNUSTAÐ SEM LEGGUR ÁHERSLU Á FRAMÚRSKARANDI ÞJÓNUSTU OG ÁRANGURSDRIFIÐ VINNUUMHVERFI?

HMS vinnur að undirbúningi á breytingum á fasteignamati stórra og flókinna mannvirkja á Íslandi svo sem atvinnuhúsnæðis og orkumannvirkja, í samræmi við áherslur stjórnvalda. HMS fer með yfirstjórn fasteignaskráningar á Íslandi en fyrirhuguð er endurskoðun á lögum nr. 6/2001, um skráningu, merki og mat fasteigna.

HMS býður upp á árangursdrifinn vinnustað með skýr markmið, stefnu og mælikvarða sem hjálpa okkur að vinna saman og ná lengra. Þú færð tækifæri til að leggja þitt af mörkum í verkefnum sem  skipta sköpum fyrir samfélagið.

Við leitum af drífandi einstaklingi sem hefur áhuga á að gegna lykilhlutverki í verkefnum sem tengjast framkvæmd og þróun fasteignamats, endurskoðun matsaðferða í teymi fasteignamats og skráninga hjá HMS. Viðkomandi  þarf að hafa brennandi áhuga á fasteignamarkaðinum, vera töluglöggur og hafa þekkingu á tölfræðilegri vinnslu. Við hvetjum fólk með fjölbreytta menntun og bakgrunn til að sækja um starfið.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka í innleiðingu nýrra matsaðferða fyrir fasteignamat
  • Árlegt endurmat fasteigna í samráði við teymisstjóra
  • Tryggja tímanlega afgreiðslu endurmatsbeiðna, gerð vandaðs rökstuðnings og góða þjónustu við fasteignaeigendur
  • Miðla forsendum og niðurstöðum fasteignamats til hagaðila og helstu viðskiptavina
  • Mat og skoðanir á fasteignum
  • Önnur verkefni samkvæmt ákvörðun yfirmanns
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun og reynsla sem nýtist í starfi s.s. í verkfræði, viðskiptafræði, hagfræði, stærðfræði eða öðrum greinum
  • Þekking og reynsla af fasteignamarkaði, matstörfum, gagnagreiningum eða gerð tölfræðilegri líkana er kostur
  • Frumkvæði, drifkraftur, sjálfstæði og vönduð vinnubrögð
  • Jákvætt og lausnamiðað hugarfar
  • Mikil færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
Auglýsing birt20. nóvember 2026
Umsóknarfrestur2. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 21, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar