
Rio Tinto á Íslandi
Rio Tinto á Íslandi – í daglegu tali oft nefnt “ISAL” – hefur framleitt ál í Straumsvík frá árinu 1969 og notar til þess íslenska umhverfisvæna orku.
Við framleiðum um 200 þúsund tonn af hágæðaáli á ári og sendum það til fjölmargra viðskiptavina víðsvegar í Evrópu. Þannig öflum við dýrmætra gjaldeyristekna fyrir íslenskt efnahagslíf og samfélag.
Ál gerir daglegt líf okkar betra; það er meðal annars notað í bíla, flugvélar, byggingar, raftæki á borð við tölvur og síma, og umbúðir utan um matvæli, drykki og lyf. Mikil meirihluti áls er endurunninn sem þýðir að komandi kynslóðir geta notað það aftur og aftur með lítilli fyrirhöfn.
Við erum fjölbreyttur vinnustaður tæplega 400 starfsmanna auk verktaka.
Við kappkostum að vera í fararbroddi í öryggis-, heilbrigðis- og umhverfismálum og leggjum einnig mikla áherslu á starfsmenntamál og jafnrétti á vinnustað.
Gildi okkar eru: umhyggja - hugrekki - framsækni

Sérfræðingur umhverfismála
Viltu taka þátt í að móta kolefnislausa framtíð með okkur?
Við leitum að áhugasömum einstaklingi til starfa á rannsóknastofu innan Þróunarsviðs Rio Tinto á Íslandi.
Um er að ræða spennandi og krefjandi starf í lifandi umhverfi. Starfið veitir gott tækifæri til að kynnast umhverfismálum í stóru framleiðslufyrirtæki.
Rannsóknastofan gegnir lykilhlutverki í umhverfismálum Rio Tinto. Þar starfa sex manns sem sinna mælingum á sviði umhverfis- og vinnuumhverfismála, auk efnagreininga sem tengjast rekstri fyrirtækisins. Við leitum að traustum og ábyrgum einstaklingi til þess að verða hluti af okkar teymi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sjá um skipulagningu og framkvæmd mælinga í umhverfismálum og vinnuumhverfi
- Tryggja áreiðanleika mælinga og gæði niðurstaðna
- Þátttaka í kolefnisbókhaldi fyrirtækisins (ETS)
- Úrvinnsla gagna og skýrslugerð
- Samskipti innan fyrirtækisins
- Fylgja eftir kolefnisáætlun fyrirtækisins
- Rýni á tækni til að fanga koltvísýring
- Ýmis önnur verkefni tengd umhverfismálum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Þekking á efnagreiningu og umhverfismálum
- Reynsla af rannsóknum, tækniþróun og umbótastarfi er kostur
- Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð tölvukunnátta og hæfni í greiningarvinnu
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Góðir samskiptahæfileikar
Fríðindi í starfi
- Frítt fæði í mötuneyti
- Heilsustyrkur
- Fæðingarorlofsstyrkur allt að 18 vikur á óskertum launum
- Velferðartorg
- Þátttaka í hlutabréfakaupum
- Öflugt þjálfunar- og fræðslustarf
Auglýsing birt5. júní 2025
Umsóknarfrestur22. júní 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Straumsvík, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniRannsóknirSjálfstæð vinnubrögðVinnsla rannsóknargagna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (10)

Sérfræðingur í sjálfbærni
Heimar

Operations & Pilot Scientist - Drug Product Development
Alvotech hf

Material Science Scientist - Drug Product Development
Alvotech hf

Process Development Scientist - Drug Product Development
Alvotech hf

Formulation Development Scientist - Drug Product Development
Alvotech hf

Sérfræðingur í þróunardeild mæliaðferða
Alvotech hf

Aðstoðarforstöðumaður
Þeba félagsmiðstöð

Technical Investigator
Alvotech hf

Leiðtogi í tækniþjónustuteymi / Head of Technical Team
Alvotech hf

Dulbúinn viðskiptavinur
Helion Market Research CVBA